Körfubolti

Skoraði í eigin körfu | Myndband

Ótrúlegt atvik átti sér stað í leik Mexíkó og Slóvakíu í HM U-17 kvenna í körfubolta á dögunum.

Eftir að leikmaður Mexíkó brenndi af tveimur vítaköstum náðu Slóvakar frákastinu. Leikmaður síðarnefnda liðsins ruglaðist hins vegar í ríminu og skoraði í eigin körfu eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.

Eitthvað hefur þetta ruglað leikmenn Mexíkó því stöðva þurfti leikinn eftir að þeir hófu nýja sókn og sóttu þá einnig að eigin körfu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×