Handbolti

Skoraði 13 mörk úr 13 skotum

Arnar Björnsson skrifar
Lasse Svan Hansen var frábær í kvöld þegar Danir unnu Slóvena 36-33. Hann skoraði mörk í öllum regnbogans litum og þegar alls 13 úr jafnmörgum skotum.

Ekkert markanna kom af vítapunktinum. Guðmundur Guðmundsson hrósaði honum í hástert og vildi ekki skipta honum útaf eins og hann er vanur.

„Ég naut þess að spila þennan leik og fékk mörg tækifæri til að skora í kvöld“.

Þú skoraðir mörk alls staðar af að vellinum og m.a. úr gagnstæðu horni.

„Já þetta er nokkuð sem við Anders Eggert gerum og stundum tekst það og það er gaman þegar það tekst."

Guðmundur er vanur að skipta þeim hornamönnum sem byrja útaf í hálfleik en hann þorði ekki að gera það í þessum leik?

„Nei líklega vegna þess að mér gekk vel í fyrri hálfleik (þá skoraði Lasse Svan 8 mörk úr 8 skotum). Hann vildi greinilega gefa mér tækifæri til að halda áfram“.

Hvað með leikinn við Króatana á morgun, þú hlýtur að vera dauðþreyttur?

„Já ég var orðinn þreyttur síðustu 5-10 mínúturnar en á morgun er nýr dagur og þá verð ég til í slaginn."   


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×