Innlent

Skora á stjórnvöld að stórefla atvinnulíf

Akureyri.
Akureyri.
Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna á Akureyri skorar á stjórnvöld að stórefla atvinnulíf í Þingeyjasýslum, varar við því að Reykjavíkurflugvöllur verði lagður niður og farið verði í forval vegna Vaðlaheiðarganga svo framkvæmdir við þau geti hafist í sumar.

Á aðalfundinum sem haldinn var í gær voru samþykktar þrjár ályktanir. Í ályktun um Reykjavíkurflugvöll er varað við því að flytja miðstöð innanlandsflugsins frá Reykjavíkurflugvelli. Á næstu árum muni rísa hátæknisjúkrahús í Reykjavík sem ætlað sé að þjóna öllu landinu. Mikilvægi nálægðar flugvallarins við sjúkrahúsið sé ótvírætt og geti skipt sköpum auk þess sem flugvöllurinn gegni lykilhlutverki í öryggisneti landsins

Þá minnir aðalfundurinn á að í höfuðborgini sé staðsettar höfuðstöðvar stjórnsýslu, auk flestra opinberra stofnana landsins á sviði viðskipta-, mennta-, menningar- og heilbrigðismála. Sú staðreynd kalli eðlilega á greiðar samgöngur til og frá borginni, öðruvísi geti Reykjavík varla staðið undir nafni sem höfuðborg allra landsmanna.

Aðalfundur málmiðnaðarmanna á Akureyri skorar einnig á ríkisstjórnina að láta sem fyrst fara fram forval vegna gerðar Vaðlaheiðarganga þannig að framkvæmdir geti hafist í sumar. Öll gögn séu þegar til staðar auk þess sem sveitarfélögin á svæðinu séu einhuga um mikilvægi væntanlegra jarðganga.

Göngin muni stórauka öryggi vegfarenda, ekki síst íbúa austan Vaðalheiðar sem þurfi að sækja margháttaða þjónustu, svo sem bráðaþjónustu á heilbrigðissviði um Víkurskarð. Aðalfundurinn bendir á að heimamenn styðji áætlanir um hóflegt veggjald um göngin, þannig að fjárfestingin skili sér til baka á eðlilegum tíma.

Aðalfundurinn hvetur ríkisstjórn Íslands til að stuðla ákveðið að því að stórefla atvinnulífið í Þingeyjarsýslum sem allra fyrst. Skoðanakannanir meðal íbúa á undanförnum árum sýni glögglega að þeir krefjist þess að nýting orkuauðlinda héraðsins fari til stórfelldrar atvinnuuppbyggingar á svæðinu. Íbúaþróun á Norðausturlandi hafi verið neikvæð. Einsýnt sé að tími framkvæmda sé runninn upp í Þingeyjarsýslum.

Aðalfundurinn samþykkti einnig í tilefni 70 ára afmæli félagsins að Sjúkrasjóður þess gefi Sjúkrahúsinu á Akureyri eina milljón króna til tækjakaupa í samráði við stjórnendur sjúkrahússins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×