Innlent

Skólastjórar í Reykjavík krefja kjörna fulltrúa um aðgerðir

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Austurbæjarskóli
Austurbæjarskóli Fréttablaðið/Vilhelm
Skólastjórar grunnskóla í Reykjavík krefjast þess að pólitískt kjörnir fulltrúar forgangsraði nú þegar í þágu barnanna í borginni, enda verður lögboðnu skólastarfi ekki sinnt miðað við núverandi aðstæður.

Skólastjórar í grunnskólum Reykjavíkurborgar lýsa yfir verulegum áhyggjum af fjárhagslegri stöðu grunnskólanna í borginni sem leitt hefur til skertrar þjónustu við nemendur. Segja þeir að lögboðnu skólastarfi verði ekki sinnt miðað við núverandi aðstæður.

„Vegna ákvarðana borgaryfirvalda geta grunnskólar í Reykjavík ekki lengur boðið nemendum sínum upp á sambærilega þjónustu og nágrannasveitarfélögin,“ segir í ályktun sem samþykkt var á fundi skólastjóranna í dag.

„Skólastjórar grunnskóla í Reykjavík krefjast þess að pólitískt kjörnir fulltrúar forgangsraði nú þegar í þágu barnanna í borginni, enda verður lögboðnu skólastarfi ekki sinnt miðað við núverandi aðstæður.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×