Innlent

Skjálfti að stærð 4,8 við Bárðarbungu

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá gosinu í Holuhrauni.
Frá gosinu í Holuhrauni. Vísir/Hörður Finnbogason
Jarðskjálfti að stærð 4,8 varð við norðanverða brún Bárðarbunguöskju nú klukkan korter yfir ellefu. 

Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þetta er stærsti skjálftinn á svæðinu frá því klukkan átta í gærmorgun en skjálftavirkni hefur ekki verið mikil í kjölfar gossins við Holuhraun.



Tengdar fréttir

Eldgos hefur ekki áhrif á flugumferð

"Við sjáum ekki á þessu stigi að þetta hafi áhrif á flug okkar. Hugsanlega yrðu minniháttar breytingar gerðar en ekki mikið meira en það.“

Ítarlegur gosfréttatími Bylgjunnar

Fréttafólk Bylgjunnar, Vísis og Stöðvar 2 mun í hádeginu upplýsa hlustendur Bylgjunnar um stöðu gossins í Holuhrauni. Tveir fréttamenn fóru af stað í nótt ásamt fjölmennu töku- og tækniliði.

Fundað í samhæfingarmiðstöðinni

Á annan tug manns eru mættir til vinnu í Samhæfingarmiðstöð almannavarna í Skógarhlíð sökum þess að eldgos er hafið í Holuhrauni á milli Dyngjujökuls og Öskju norðan við Vatnajökul.

Flugu yfir gosstöðvarnar í morgun

Kristján Þór Kristjánsson flaug yfir gosstöðina í Holuhrauni í morgun. Með í för var myndatökumaðurinn Hörður Finnbogason sem tók meðfylgjandi myndband og ljósmyndir. Eins og sést hefur greinilega dregið nokkuð úr gosinu frá því þegar mest var í nótt.

Hér er gosið

Myndin er unnin af Ingibjörgu Jónsdóttur hjá Jarðvísindastofnun upp úr gögnum NASA og USGS.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×