Skírði í höfuðið á móður Lennon 5. júlí 2007 04:30 Nafnið Jarún er í höfuðið á langömmum og -öfum hennar en Júlía er í höfuðið á móður Bítilsins John Lennon. Mynd/Heiða
Jakob Frímann Magnússon og kona hans Birna Rún Gísladóttir eignuðust sem kunnugt er dóttur í lok maí síðastliðins. Sú litla var skírð nýverið og var gefið nafnið Jarún Júlía, en hún er sú eina á landinu sem ber Jarúnarnafnið. „Ef merkingin er skoðuð má sjá að forskeytið „ja“ er komið af sama stofni og guðsnafnið „jave“. Rún þýðir hinsvegar tákn. Nafnið merkir því eiginlega guðstákn og hvað er táknrænna fyrir almættið en nýfætt stúlkubarn?“ sagði Jakob þegar Fréttablaðið hafði samband við hann og spurði hvaðan þetta óvenjulega nafn væri komið. Nafn Jarúnar er þó ekki leitt beint af nöfnum þeirra Jakobs og Birnu Rúnar. „Það er búið að skíra í höfuðið á báðum ömmum barnsins. Þess vegna fórum við að skoða bæði langafa- og ömmur,“ segir Jakob. „Birnu megin voru nöfnin Guðrún og Sigrún. Afi minn hét Jakob. Allir þessir einstaklingar voru miklir áhrifavaldar í okkar lífi. Seinna nafnið, Júlía, er hinsvegar í höfuðið á móður John Lennon,“ segir Jakob og bætir því við að Lennon hafi alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá bæði sér og Birnu. „Hugmyndin að nafninu fæddist fljótlega eftir að við sáum myndir af barninu í þrívíddarsónar. Við mátuðum nafnið strax við hana og það hefur bæði vanist og vaxið síðan.“ Mannanafnanefnd samþykkti nafnið einróma og gestir í skírninni gerðu slíkt hið sama. „Viðbrögðin hafa öll verið á einn veg enda ber stúlkan nafnið með stakri prýði.“
Mest lesið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Fleiri fréttir „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Sjá meira