Innlent

Skelfilega sorglegur atburður

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Slysið varð á veginum nærri Seljalandsfoss síðdegis í gær. Tilkynning barst lögreglu um klukkan 16:30.
Slysið varð á veginum nærri Seljalandsfoss síðdegis í gær. Tilkynning barst lögreglu um klukkan 16:30. Vísir/Anton Brink
Mun verr hefði getað farið gagnvart farþegum þegar rútubílstjóri Kynnisferða fékk fyrir hjartað skammt frá Seljalandsfossi síðdegis í gær. Átján dönsk ungmenni voru í rútunni ásamt tveimur fullorðnum og þá var reyndur leiðsögumaður með í för. Kristján Daníelsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða, segir um skelfilega sorglegan atburð sé að ræða bæði innan fyrirtækisins og auðvitað fjölskyldunnar.

Kristján lýsir því þannig að rútan, sem var af minni gerðinni, hafi verið á litlum hraða á veginum og hafi runnið útaf honum og stöðvast þar. Kristján segir viðbrögð aðila á staðnum hafa verið mjög góð, allt sem hægt hafi verið að reyna hafi verið reynt, lögregla hafi komið snemma á staðinn en bílstjórinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Hann var úrskurðaður látinn en endurlífgunartilraunir höfðu verið reyndar á vettvangi án árangurs.

Enginn farþegi slasaðist en hópurinn var fluttur í Heimaland á Hvolsvelli þar sem allir fengu áfallahjálp að sögn Kristjáns. Önnur rúta frá Kynnisferðum flutti hópinn í bæinn í gærkvöldi þar sem fulltrúar Rauða krossins og prestur tóku á móti þeim. Það hafi verið gert til öryggis að sögn Kristjáns. Í framhaldinu var send út tilkynning til allra 400 starfsmanna Kynnisferða að næstu skref yrðu ákveðin í samráði við ættingja.

Nánir samstarfsmenn mannsins á vaktinni hittust í gærkvöldi og allir sem óskuðu eftir aðstoð fengu hana að sögn Kristjáns. Maðurinn sem lést var á fimmtugsaldri.

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×