Skattpíndur sopi

Vísir Fastir pennar 16. ágúst 2010 06:00
Skattpíndur sopi
Ólafur Stephensen skrifar:
Það er orðið ljóst að ríkisstjórnin gekk of langt með gífurlegum hækkunum á sköttum á áfenga drykki í fyrra. Niðurstaðan hefur orðið sú sem ýmsir spáðu; sala áfengis í ÁTVR hefur minnkað og þannig hefur tekjustofninn sem ríkisstjórnin hugðist skattpína dregizt saman.

Einhverjir kunna að segja að það geri ekkert til; meiri tekjur komi engu að síður í kassann, enda hafa áfengisgjöldin hækkað um 40% og ÁTVR hefur líka hækkað hressilega hjá sér álagninguna. Samdrátturinn í neyzlu hefur ekki vegið upp á móti þessu. Og svo getur ekki verið slæmt að fólk drekki minna, eða hvað?

Um það má hins vegar deila, hvort verðhækkunin hafi leitt af sér minni neyzlu. Könnun, sem Félag atvinnurekenda lét gera og sagt var frá fyrir helgi, sýnir að smygl og heimabrugg á áfengi hefur aukizt. Meira en fjórðungur svarenda sagðist verða var við slíkt. Í yngsta hópnum, 18-29 ára, segist helmingur svarenda verða í meira mæli var við smygl og heimabrugg.

Þetta er gömul saga og ný. Allt frá því að áfengisbann var afnumið á Íslandi hefur verið fylgt haftastefnu. Reynt hefur verið að takmarka aðgang að áfengi með ríkiseinkasölu og fáránlega háu verðlagi. Áfengisgjöldin voru fyrir þau hæstu í Evrópu, þótt skattlagningin í Noregi slagaði upp í það sem hér gerðist. Smygl, heimabrugg og drykkja á alls konar óþverra var afleiðingin.

Nú hefur Ísland tekið afgerandi forystu í skattpíningu neytenda áfengra drykkja og þá er ekki við öðru að búast en að framleiðsla og aðflutningur áfengis færist í enn meiri mæli út fyrir mörk hins löglega. Það vinnur svo á móti því að hér verði til skikkanleg vínmenning, sem þrátt fyrir allt hafði skánað á síðustu árum.

Stefán Guðjónsson, rekstrarstjóri Einars Ben og vínáhugamaður, sagði í samtali við helgarblað Fréttablaðsins að það væri sorglegt hvaða áhrif verðhækkanirnar væru farnar að hafa á vínmenninguna. „Þetta eykur ólöglegt brugg á áfengi, smygl og landasölu. Mikið af þessum efnum er mjög hættulegt," sagði Stefán, sem taldi vínmenningu á Íslandi nú á sama stað og hún hefði verið fyrir átján árum.

Yngsti hópurinn, sem hefur minnst handa á milli, er einmitt sá sem við viljum sízt að sé að sulla í óþverra. Það er áhyggjuefni að unga fólkið skuli í vaxandi mæli sækja í smygl og heimabrugg, en rökrétt afleiðing af stefnu stjórnvalda. Svo virðist sem ríkisstjórnin hafi lítið lært af misheppnaðri áfengispólitík síðustu áratuga, sem hefur miðazt við að reyna að takmarka alla áfengisneyzlu, í stað þess að beinast að misnotkun áfengis og afleiðingum hennar. Aukin skattpíning er líkleg til að auka enn á vandann.
Þá er eftir að nefna aðra afleiðingu skattpíningarstefnu stjórnvalda, áhrifin á vísitöluna. Áfengi er hvort sem fólki líkar betur eða verr hluti af neyzluútgjöldum íslenzkra heimila. Það hækkaði auðvitað vegna hruns krónunnar eins og allar aðrar innfluttar vörur. Þegar skattpíningin bætist við, eru áhrifin á fjárhag heimila, þar með talinn skuldabaggann, umtalsverð.

Vonandi hverfur ríkisstjórnin frá þessari fráleitu tilraun til að setja heimsmet í skattlagningu vöru, sem er hluti af daglegu neyzlumynztri vestrænna þjóða.

Athugiđ. Allar athugasemdir eru á ábyrgđ ţeirra er ţćr rita. Vísir hvetur lesendur til ađ halda sig viđ málefnalega umrćđu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til ađ fjarlćgja ćrumeiđandi eđa ósćmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Bankablús

Viđbúiđ var ađ rekiđ yrđi upp margraddađ ramakvein ţegar Landsbankinn tilkynnti um uppsagn...  

Meira
Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Á Heimaey betur heima í ríkissjóđi?

Ný Heimaey í eigu Ísfélagsins kom fyrir skömmu til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Margir hr...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega lćt ég ógeđslega ritskođunartilburđi fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhćfa planiđ

Ţegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir ţau tímabundna ráđstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alţingiskosningar bauđ RÚV frambođunum ađ fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráđherra skrifađi athyglisverđa grein hér í blađiđ í síđust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getađ fariđ inn á vefsíđur Íbúđa...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvćđaveiđigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síđustu viku međ talsverđum lúđrablćstri svokallađa fjárfestingaáćt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferđarráđherra og sérgreinalćknar?

Í umrćđunni undanfariđ hefur veriđ tíđrćtt um gjöld vegna komu til sérfrćđilćkna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftiđ mýta?

Sćl, Sigga Dögg. Ég las greinina ţína um mýtuna um ţröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óţarfi

Listahátíđin í Reykjavík var alltaf stórviđburđur í lífi föđur míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeiđ ţar sem atvinnuleysi var nánast óţekkt á Íslandi skall ţađ á af ţunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Gođsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannađ hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir ţeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var ađ siđfrćđi margra ţeirra sem áttu og stjórnuđu gömlu bönkunum fyrir hrun hefđi r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suđurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir ađ hann klárađi kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi ađ lögum um fjölmiđla sem nú liggur fyrir ţinginu er lagt til ađ útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samiđ um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í ţví fólst međal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn viđ upplýsingar

Ţórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi ţingmađur Samfylkingarinnar, skrifađi grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandrćđum međ nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótiđ lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeiđ sett mikinn ţrýsting á lífeyrissjóđi landsins um ađ...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Ţađ eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigđra ţegar valdamesti mađur heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvađ Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsćtisráđherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Ţađ gefur á bátinn …

Ţađ eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virđingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóđandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúđ fyrr á ţessu ári. Samhliđa ţví fórum viđ yfir re...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Skattpíndur sopi