Dorrit Moussaieff forsetafrú ber að greiða skatta á Íslandi þar sem hún hefur lögheimili hér á landi í samræmi við meginreglu skattaréttar. Hún telur fram hér en vegna tvísköttunarsamnings við Bretland greiðir hún ekki skatta á Íslandi.
Fréttir um skattleysi Dorritar hafa vakið athygli en hún greiðir hvorki auðlegðarskatt né tekjuskatt að neinu ráði hér á landi.
Starfsmenn forsetaembættisins hafa haldið því fram í skriflegum og munnlegum svörum til fjölmiðla að forsetafrúin hafi engar tekjur hér á landi greiði því ekki skatta hér.
Þetta er á skjön við lög um tekjuskatt og meginreglu skattaréttar, svokallaða heimilisfestisreglu, en forsetafrúin er með lögheimili hér samkvæmt þjóðskrá.
Vala Valtýsdóttir er lögfræðingur og sérfræðingur í skattarétti. Tekið skal fram að Vala þekkir ekki mál forsetafrúarinnar en við fengum hana til að ræða þessi mál almennt. Í myndskeiði með frétt má sjá viðtal við hana, en hún segir að meginreglan sé sú að einstaklingar með lögheimili hér á landi greiði skatta hér. Þannig skipti ekki máli hvaðan tekjur séu sprottnar, greiða þurfi skatta af þeim hér. Tvísköttunarsamningar geti hins vegar haft áhrif. Þannig sé tekjuskattur sem greiddur er í Bretlandi frádráttarbær.
Þau svör fengust hjá skrifstofu forseta Íslands í dag að tekjur Dorritar Moussaieff væru taldar fram erlendis og greiddir af þeim skattar í samræmi við reglur um tvísköttun en að þessar tekjur væru jafnframt tilgreindar á íslenskum skattframtölum hennar. thorbjorn@stod2.is
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Breytinga er þörf á því hvernig staðið er að gerð kjarasamninga og nauðsynlegt er að auka aga og skerpa vinnubrögð samningsaðila. Þetta er niðurstaða vinnuhóps samtaka launafólks og vinnuveitenda sem ...
Meira
Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra stækkaði í dag bannsvæði hvalveiða á Faxaflóa. Forkastanleg vinnubrögð, segir þingmaður Sjálfstæðisflokks, enda sé verið að taka burt svæði þar sem áttatíu...
Meira
Gagnrýnendur færslu Álftanesvegar um Gálgahraun segja að ekki hafi verið farið að tilmælum innanríkisráðherra sem vildi að forsendur framkvæmdarinnar yrðu endurskoðaðar. Bæjarstjórn Garðabæjar og Vega...
Meira
Bæði ráðuneytum og ráðherrum verður fjölgað með nýrri ríkisstjórn. Stjórnarsáttmáli Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks tekur meðal annars á skuldamálum heimilanna. Hann verður kynntur flokksmönnum í kvö...
Meira
Rúmlega tvítugur karlmaður var dæmdur í 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að nauðga vini sínum. Hinn dæmdi átti afmæli þegar brotið átti sér stað í desember árið 2...
Meira
Íslenski dansflokkurinn og Sinfóníuhljómsveit Íslands fara í eina sæng á Listahátíð í Reykjavík um helgina. Þar munu þau flytja tvö af frægustu danstónverkum tónskáldsins Igors Stravinskis á Eldborgar...
Meira
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun eiga fund á morgun með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, þar sem væntanlega verður farið yfir niðurstöður stjórnarmyndunarviðræðn...
Meira
Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra hefur ákveðið að stækka verulega griðasvæði Faxaflóa þannig að svæðið nái frá Garðskagavita og í beina línu að Skógarnesi. Þetta kemur fram á vef atvinnuve...
Meira
Helgi Hjörvar, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis Suður, var kjörinn formaður þingflokks Samfylkingarinnar á þingflokksfundi í dag. Í tilkynningu frá Samfylkingunni kemur fram að með Helga voru kosin í...
Meira
Esja Ultra ofurhlaupið verður haldið 22. júní næstkomandi. Boðið verður upp á fjórar vegalengdir þar sem fólk getur hlaupið 1, 2, 5 eða 10 hringi upp að Steini innan tímamarka. Þá verða einnig þriggj...
Meira
Sérstök dómnefnd hefur helmings vægi til móts við símakosningu í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Dómnefndin er því mikill úrslitavaldur í því hvernig úrslitin ráðast.
Meira
Eygló Harðardóttir alþingismaður var skiptinemi í Oklahoma fyrir rúmum áratug, og þekkir vel til óvissu og hræðslu við hvirfilbylina sem fara þar í gegn ár hvert á vorin.
Meira
Yfirlögregluþjónn segir almenning ekki þurfa að hafa áhyggjur af mögulegum eftirmálum líkamsárásar í Ystaseli. Dæmdir ofbeldismenn sem málinu tengjast ganga lausir. Fullyrt er að vinir árásarþolans ha...
Meira
Auður Björnsdóttir hundaþjálfari hefur þjálfað hunda til að hjálpa fötluðum sem og flogaveikum. Hún hefur einnig þjálfað hund sem fer með hlutverk í íslenskri bíómynd og annan sem dansar við lög Helga...
Meira
Ef stjórnvöld veita ekki fjármagni til Kvikmyndasafns Íslands þá mun Gaflaraleikhúsið taka við rekstri Bæjarbíós í Hafnarfirði. Beiðni Kvikmyndasafnsins um framlengingu samnings er hafnað og hverfur s...
Meira
Ný gerð skæðrar bráðalungnabólgu hefur skotið upp kollinum og hefur þegar lagt 20 manns að velli, eða helming þeirra sem hafa greinst með sjúkdóminn síðan í mars 2012.
Meira