Erlent

Skattafrumvarp nýtur nú fulls stuðnings Repúblikana

Samúel Karl Ólason skrifar
Marco Rubio ákvað að styðja frumvarpið þegar látið var eftir kröfu hans um að auka afslátt fólks á sköttum vegna barna.
Marco Rubio ákvað að styðja frumvarpið þegar látið var eftir kröfu hans um að auka afslátt fólks á sköttum vegna barna. Vísir/AFP
Repúblikönum hefur tekist að safna stuðningi til að koma skattafrumvarpi sínu í gegnum báðar deildir þingsins. Síðustu tveir öldungadeildarþingmenn flokksins sem neituðu að styðja frumvarpið hafa nú skipt um skoðun eftir skyndibreytingar á því nú í kvöld. Marco Rubio og Bob Corker segjast nú ætla að greiða atkvæði með frumvarpinu.

Útlit er fyrir að lokaútgáfa frumvarpsins verði kynnt á þinginu í kvöld svo hægt verði að kjósa um það í næstu viku. Repúblikanar hafa lagt mikið kapp á að koma hinu óvinsæla frumvarpi hratt og örugglega í gegnum þingið svo Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, geti skrifað undir það fyrir áramót, eða jafnvel fyrir jól.

Umrætt frumvarp var að mestu skrifað á bak við tjöldin og litlar sem engar umræður um það hafa farið fram.

Repúblikanar segja að um „sögulegar“ skattalækkanir fyrir miðstéttina sé um að ræða en Demókratar og óháðir sérfræðingar segja að hinir ríku og fyrirtæki muni græða mest á frumvarpinu. Fyrirtæki fá varanlega skattaafslætti en innan nokkurra ára munu meðlimir miðstéttar landsins greiða hærri skatta en nú.

Þeir Bandaríkjamenn sem eru líklegastir til að þurfa að greiða hærri skatta eru þeir sem búa í ríkjum þar sem skattar eru tiltölulega háir fyrir. Samkvæmt Washington Post eru það ríki eins og New York, New Jersey og Kalifornía. Íbúar margra þeirra ríkja sem um ræðir hafa í gegnum tíðina verið líklegri til að kjósa Demókrata en Repúblikana.



Sjá einnig: Fátækum fórnað á altari hinna ríku



Samkvæmt frétt New York Times hafa Repúblikanar þó aukið skattaafslátt lág- og miðtekjufólks smávægilega á kostnað hinna efnameiri. Enn er þó talið að skattabreytingar Repúblikana muni auka verulega við tekjuhalla ríkissjóðs á næstu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×