Matur

Sjúklega gott súkkulaði fondú

Eva Laufey Kjaran skrifar
Það þarf ekki að vera flókið að útbúa veitingar fyrir vinahópinn og algjör óþarfi að stressa sig korter fyrir boðið.
Það þarf ekki að vera flókið að útbúa veitingar fyrir vinahópinn og algjör óþarfi að stressa sig korter fyrir boðið. vísir
Súkkulaðidraumur Einföld uppskrift sem slær alltaf í gegn.

150 g súkkulaði

50 - 60 ml rjómi (það á aðeins að fljóta yfir súkkulaðið)

1/2 - 1 tsk kanill

1 tsk sykur

Aðferð:

1. Saxið súkkulaði niður og setjið í pott, hellið rjómanum yfir og leyfið súkkulaðinu að bráðna í rólegheitum við vægan hita.

2. Setjið 1 teskeið af sykri og smá kanil saman við, hrærið í súkkulaðiblöndunni og hellið í skál.

Berið fram með allskyns ávöxtum og berjum.

Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2.


Tengdar fréttir

Besta eplakakan

Ég er sólgin í eplakökur og mér finnst þessi gamla og góða sú allra besta. Stökk að utan og mjúk að innan borin fram með þeyttum rjóma.

Ekta French Toast með jarðarberjum

Um helgar nýt ég þess að elda góðan morgunverð og þá er í lagi að gera vel við sig. Þessi uppskrift að eggjabrauði með jarðarberjum og sírópi er einstaklega ljúffeng og ættuð þið að prófa þennan einfalda morgunverð strax um helgina.

Ljúffeng ísterta með Daim súkkulaði

Daim ísterta er hinn fullkomni eftirréttur, stökkur marengsbotn með ísfyllingu og smátt söxuðu Daim súkkulaði. Sannkölluð veisla fyrir sælkera og súkkulaðiaðdáendur.

Tryllingslega gott karamellupæ

Í síðasta þætti af Matargleði skellti ég í þetta ofureinfalda og bragðgóða karamellupæ með þeyttum rjóma og súkkulaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×