Körfubolti

Sjötíu stig Booker dugðu Phoenix ekki til í Boston | Úrslit kvöldsins

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Booker átti stórleik í nótt.
Booker átti stórleik í nótt. Vísir/Getty
Þrátt fyrir að hafa fengið sjötíu stig frá ungstirninu Devin Booker þurfti Phoenix Suns að sætta sig við tíu stiga tap 130-120 gegn Boston Celtics í TD Garden í nótt.

Booker sem er aðeins tuttugu ára gamall bætti með því félagsmet Phoenix Suns og varð um leið sjötti leikmaðurinn sem nær þessum áfanga. Er hann því í flokki með mönnum á borð við Wilt Chamberlain, Kobe Bryant, Elgin Baylor, David Robinson og David Thompson.

Lék hann 44 mínútur í gær og tók 40 skot í leiknum ásamt því að gefa sex stoðsendingar en þrátt fyrir það leiddi Boston frá upphafi til enda í leik sem áhorfendur fengu nóg fyrir peninginn. Í liði Boston dreifðist stigaskorunin vel en bakvörðurinn knái Isaiah Thomas var stigahæstur í liði heimamanna með 34 stig.

Fyrr um kvöldið var LeBron James aðeins einu frákasti frá elleftu þreföldu tvennu tímabilsins í sjö stiga sigri á New Orleans Pelicans en Cleveland-menn svöruðu heldur betur fyrir eina verstu varnarframmistöðu liðsins í langan tíma gegn Denver Nuggets í leiknum þar á undan.

Cleveland náði forskotinu í upphafi annars leikhluta og með góðu framlagi frá meðreiðasveinum James náðu gestirnir frá Cleveland að innbyrða sigurinn og halda í toppsæti Austurdeildarinnar þegar skammt er eftir af tímabilinu.

Þá vann Los Angeles Lakers sjaldséðan sigur er liðið tók á móti Minnesota Timberwolves í Staples Center en heimamenn í Lakers náðu að knýja fram framlengingu með góðum lokasprett og voru með töluverða yfirburði í framlengingunni.

Úrslit gærkvöldsins:

Washington Wizards 129-108 Brooklyn Nets

Charlotte Hornets 105-112 Cleveland Cavaliers

Orlando Magic 115-87 Detroit Pistons

Indiana Pacers 117-125 Denver Nuggets

Boston Celtics 130-120 Phoenix Suns

Chicago Bulls 107-117 Philadelphia 76ers

Milwaukee Bucks 100-97 Atlanta Hawks

Houston Rockets 117-107 New Orleans Pelicans

Los Angeles Lakers 130-119 Minnesota Timberwolves

Golden State Warriors 114-100 Sacramento Kings

Helstu tilþrif kvöldsins:
Stórkostleg frammistaða Booker:
Clarkson var flottur í sigri Lakers
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×