Viðskipti innlent

Sjötíu milljarða velta af kvikmyndaframleiðslu frá hruni

jón hákon halldórsson skrifar
Árið 2013 var besta árið í kvikmyndaframleiðslu hingað til. Það ár voru myndirnar Noah og Walter Mitty teknar upp.
Árið 2013 var besta árið í kvikmyndaframleiðslu hingað til. Það ár voru myndirnar Noah og Walter Mitty teknar upp.
Kvikmyndaframleiðsla á Íslandi velti yfir 70 milljörðum króna árin 2009-2015 og ársvelta hefur meira en tvöfaldast á því tímabili. Fjöldi starfa í kvikmyndaiðnaði hefur vaxið að sama skapi og eru nú 1.300 störf í greininni.

Hilmar Sigurðsson, formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda, segir að helsta ástæða þessarar veltuaukningar séu þau erlendu verkefni sem hafi komið hingað til lands. „Það eitt og sér er ekki eina ástæðan en þar byrjar vöxturinn. Við sjáum hann 2011 og 2012 og svo er árið 2013 langstærsta árið í greininni,“ segir hann.

Hilmar segir ásókn erlendra kvikmyndaframleiðenda hingað til lands skýrist af þremur þáttum. „Við erum með landslag sem er verið að sækjast eftir í myndunum. Við erum með hæft starfsfólk sem er alið upp í íslenskum kvikmyndaiðnaði og er almennt látið vel af. Svo er það endur­greiðslan. Þetta þrennt þarf að fara saman svo að þetta gangi allt upp,“ segir Hilmar. Hann bætir því við að ásóknin í kvikmyndað efni, bæði innlent og erlent, hafi aukist mjög mikið. Það skýri líka aukna veltu í kvikmyndaframleiðslu á Íslandi.

Hilmar er bjartsýnn á að íslenskir kvikmyndaframleiðendur geti aftur upplifað ár sem er sambærilegt við árið 2013. „Það eru margar vísbendingar um að árið í ár fari hátt í það – ef ekki yfir það. Það hefur þegar verið Fortitude fyrir austan og svo Fast 8 á Mývatni og Akranesi. Þannig að við sjáum alveg töluvert að gera í framleiðsluhlutanum í greininni.“

Hilmar segir að framleiðendur hafi fundið fyrir tortryggni í fjármála- og bankakerfinu gagnvart þessum hraða vexti.

Að auki komi stundum upp tilfelli þar sem fólk þekkir ekki þær leiðir sem í boði eru til að fjármagna verkefni. Þess vegna standa Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda og Samtök iðnaðarins fyrir málþingi í Gamla bíói á fimmtudaginn klukkan fjögur.

Þar mun Per Naumann, forstjóri European Film Bonds, fjalla um framboð á ýmiss konar tryggingum í tengslum við fjármögnun kvikmynda. Mads Peter Ole Olsen, forstöðumaður Norðurlandadeildar franska bankans Natixis Coficíné, fjallar um fjármögnun og lán vegna kvikmynda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×