Tónlist

Sjóðheitt myndband frá Bergljótu Arnalds: Allt tekið upp ofan í vatni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega skemmtilegt myndband og lag.
Virkilega skemmtilegt myndband og lag. vísir
Visir frumsýnir í dag nýtt myndband frá Bergljótu Arnalds en það er all sérstakt fyrir þær sakir að það er allt tekið ofan í vatni. Lagið heitir Rain og hefur hún nú þegar hlaðið því inn á YouTube.

Upptökur hafa staðið yfir öðru hverju í yfir um átta mánaða skeið og var aðeins stuðst við náttúrulýsingar, utan eina töku sem tekin er að kvöldlagi þegar himinninn er svartur.

„Það er erfitt að vera við tökur ofan í vatni, þurfa að vera með opin augu, halda niðrí sér andanum og vera samt alveg afslappaður eins og vatnið umleiki mann án þess að valda þrýstingi,“ segir Bergljót.

„Það hefði aldrei verið hægt að gera þetta á einum tökudegi, það reynir alltof mikið á augun, auk þess sem þessi ótrúlega fjölbreytni í lýsingu hefði aldrei náðst. Það dásamlega við vatnið er að þar gilda allt önnur þyngdarlögmál, líkt og maður sé svífandi um ævintýrageim.“

Bergljót Arnalds segir að lagið sé dreymandi og líði áfram eins og vatn.

„Það skiptir frá 4/4 yfir í 3/4 og ýmist valhoppar eins og lækjartaumur yfir litla grjóthnullunga eða líður mjúklega áfram.“

Hér að neðan má sjá myndbandið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×