Innlent

Sjö kærðir fyrir of hraðan akstur

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Sjö ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum.
Sjö ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Vísir/Eyþór
Sjö ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Einn þeirra virti ekki stöðvunarskyldu og ók í veg fyrir flutningabíl. Hann gaf síðan í og mældist á 120 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Auk þessara brota var viðkomandi ekki með ökuskírteini meðferðis.

Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af nokkrum bifreiðum sem voru ótryggðar eða höfðu ekki verið færðar til skoðunar á tilsettum tíma.

Auk þessa var einn ökumaður stöðvaður vegna gruns um ölvunarakstur. Sá hafði gerst sekur um sama athæfi áður og ók sviptur ökuréttindum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×