Innlent

Sjö handteknir við Sundagarða

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Girðing er umhverfis hafnarsvæðið.
Girðing er umhverfis hafnarsvæðið.
Lögreglan handtók samtals sjö menn á hafnarsvæðinu við Sundagarða í nótt. Í tilkynningu er ekki greint frá því hvað mennirnir ætluðust fyrir en líklegt verður að telja að þar hafi verið á ferðinni hælisleitendur sem hafi ætlað að freista þess að komast um borð í millilandaskip á leið til Ameríku.

Um tvö atvik var að ræða. Í fyrra skiptið barst tilkynning um fjóra menn inni á svæðinu sem er kyrfilega lokað og búið öryggismyndavélum. Þeir voru handteknir á vettvangi um klukkan hálftvö í nótt.

Nokkru síðar, eða rétt fyrir klukkan þrjú í nótt, kom síðan önnur tilkynning um óboðna gesti á svæðinu. Þar var um þrjá einstaklinga að ræða og voru þeir einnig handteknir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×