Innlent

Sjáðu stjórnar­skrár­til­lögurnar: Tekist á um þjóðar­at­kvæða­greiðslur og málskotsrétt forsetans

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Undirskriftunum þarf að safna á innan við fjórum vikum frá birtingu þeirra laga eða ályktana sem kjósa á um, samkvæmt tillögunum.
Undirskriftunum þarf að safna á innan við fjórum vikum frá birtingu þeirra laga eða ályktana sem kjósa á um, samkvæmt tillögunum. Vísir
Tillögur stjórnarskrárnefndar gera ráð fyrir því að fimmtán prósent kosningabærra manna geti krafist þess að lög og þingsályktanir fari í bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Það gildir þó ekki um fjárlög, fjáraukalög, lög um skattamálefni og lög sem sett eru til að framfylgja þjóðréttarskuldbindingum.

Stendur á þjóðaratkvæðinu

Til að þjóðin geti fellt lög og þingsályktanir í atkvæðagreiðslu þarf þó minnst fjórðungur kosningarbærra manna að hafna þeim. Það þýðir að ef kjörsókn er dræm er ekki sjálfgefið að lögum sé hafnað þó að meirihluti þeirra sem greiddu atkvæði vilji það.

Undirskriftunum þarf að safna á innan við fjórum vikum frá birtingu þeirra laga eða ályktana sem kjósa á um. Atkvæðagreiðslan sjálf á síðan að fara fram innan þriggja mánaða frá því að undirskriftirnar liggja fyrir. Það geta því mest liðið fjórir mánuðir frá því að lög eru samþykkt og þar til atkvæðagreiðslan um þau hefur farið fram.

Tilgreina á nánari útfærslu á hvernig standa eigi að slíkri undirskriftasöfnun með lögum.

Flest klappað og klárt

Enn er tekist á um hvort að þetta nýja ákvæði eigi að gilda um þingsályktanir sem hafa réttaráhrif og varða náttúru Íslands og umhverfi. Á síðasta fundi nefndarinnar vildu fulltrúar Framsóknarflokks fella út ákvæði um málskotsrétt forsetans yrði þetta samþykkt, samkvæmt heimildum Vísis.

Var það eins og sprengja inn á fundinn en fram að því var talið að vinna nefndarinnar væri á lokametrunum.

Í raun er búið að klára umfjöllun og afgreiðslu hinna greinanna í tillögunum. Þær snúast um takmarkað framsal ríkisins á valdheimildum ríkisins. Til að það sé heimilt verður samningurinn um framsalið að vera í þágu friðar eða efnahagsframfara, séu byggður á gagnvkæmum skyldum aðila og að stofnanir virði lýðræðislegar grundvallarreglur.

Auðlinda- og náttúruverandarákvæði

Tvær nýjar greinar eru að finna í tillögunum er snúa að náttúru landsins. Fyrri greinin gfelur í sér að ábyrgð á náttúruvernd hvíli sameiginlega á öllum en tryggir einnig almenningi rétt til að fara um landið. Í seinni greininni er kveðið á um að auðlindir náttúru landsins tilheyri íslensku þjóðinni.

Samkvæmt tillögunni eru náttúruauðlindir og landsréttindi sem ekki eru háð einkaeignarrétti séu þjóðareign. Enginn geti fengið þessi gæði eða réttindi tengd þeim til eignar eða varanlegra afnota og þau gæði megi ekki selja eða veðsetja. 

Þar kemur einnig fram að heimildir til nýtingar þessara auðlinda leiði aldrei til varanlegs eignarréttar eða óafturkallanlegs forræðis yfir þeim. 

Hér geturðu séð nýjustu tillögur stjórnarskrárnefndarinnar í heild sinni:


Tengdar fréttir

Ákvæði um þjóðkirkju ekki verið rætt af stjórnarskrárnefnd

Umræða um hvort ákvæði um þjóðkirkju verði í nýrri stjórnarskrá hefur ekki farið fram á vettvangi stjórnarskrárnefndar, en ný skoðanakönnun bendir til meirihlutastuðnings við aðskilnað ríkis og kirkju. Tafir verða á því að nefndin komi tillögum að stjórnarskrárbreytingum til Alþingis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×