Enski boltinn

Sjáðu Salah jafna metið

Dagur Lárusson skrifar
Það voru aðeins tveir leikir spilaðir í ensku úrvaldsdeildinni í gær en þó gerðist margt athyglisvert og þar á meðal það að Mohamed Salah jafnaði markamet ensku úrvalsdeildarinnar.

 

Liverpool náði forystunni snemma leiks eftir með marki frá Danny Ings en þetta var fyrsta deildarmark hans síðan hann skoraði gegn Everton í október 2015 og var það Sadio Mané sem lagði markið upp fyrir hann á frábæran hátt.

 

Liverpool var með öruggt hald á leiknum nánast allan leikinn og ógnuðu liðsmenn WBA svo mikið sem ekkert. Það var ekki fyrr en á 72. mínútu þar sem dróg almennilega til tíðinda en þá var Oxlade Chamberlain með boltan á miðjunni og gaf frábæra sendingu á Salah og vippaði Egyptinn frábærlega yfir Ben Foster í markinu og jafnaði þar með markamet ensku úrvalsdeildarinnar yfir mörk skoruð á einu tímabili í 38 leikja deild.

 

Leikurinn var þó alls ekki búinn því WBA vaknaði nokkurn veginn við þetta mark. Í einu skiptin í þessum leik þar sem WBA hafði ógnað marki Liverpool var útfrá föstum leikatriðum og fékk WBA hornspyrnu stuttu eftir mark Salah. Eftir þá hornspyrnu skapaðist mikill usli í teig Liverpool sem endaði með því að Jake Livermore kom boltanum í netið og minnkaði muninn í 2-1.

 

Sam Field fiskaði síðan aukaspyrnu á 88. mínútu sem Chris Brunt tók. Boltinn rataði beint á kolinn á Salomon Rondon sem skallaði boltann beint í netið framhjá Karius og voru lokatölur 2-2.

 

Í hinum leik dagsins tóku Watford á móti Crystal Palace þar sem fátt marktækt gerðist. Liðsmenn Crystal Palace þurftu nauðsynlega á sigri að halda til þess að halda sig frá fallsvæðinu en hvorugu liðinu tókst þó að skora og því var niðurstaðan jafntefli.

 

West Brom - Liverpool 2-2
Watford - Crystal Palace 0-0

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×