Tónlist

Sjáðu Mugison fara á kostum í Hörpunni á Airwaves

Stefán Árni Pálsson skrifar
Flott lag frá Mugison.
Flott lag frá Mugison.
Nordic playlist stóð fyrir tónleikum í stofuhorninu í Hörpu á Iceland Airwaves á dögunum og komu þar fram listamenn á borð við Glowie, Emmsjé Gauti og Mugison. Nordic Playlist kappkostar að sýna þá  fjölbreytilegu flóru sem Ísland hefur upp á að bjóða í tónlist.

Nordic Playlist er fyrsta tónlistarvefsíðan sem einblínir á að segja frá norrænum tónlistarmönnum og útgáfum þeirra. Síðan var sett á laggirnar í janúar 2014 með stuðningi formennskuverkefnisins hjá Norrænu ráðherranefndinni sem Íslendingar voru þá í forvari fyrir.

Nú má sjá flutning Mugison á laginu I´m like A Wolf í stofuhorninu en hann fór einfaldlega á kostum eins og sjá má neðst í fréttinni.

Vefsíðan, www.nordicplaylist.com, var sett á laggirnar í janúar 2014 til að vinna að útbreiðslu norrænnar tónlistar í stafrænu umhverfi. Verkefnið er stutt af Norrænu ráðherranefndinni og var eitt af formennskuverkefnum Íslendinga árið 2014. Spilunarlistinn er þróaður af NOMEX sem er norrænn samstarfsvettvangur ÚTÓN og systurskrifstofanna fjögurra á Norðurlöndum. Vefsíðan hefur að leiðarljósi að skapa aðgang að því sem er helst að gerast svo auðvelt sé að finna upplýsingar á einum stað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×