Enski boltinn

Sjáðu mörkin þegar Liverpool rúllaði yfir Barcelona

Anton Ingi Leifsson skrifar
Liverpool var í miklu stuði á Wembley í gær, en þá skoraði rúllaði liðið yfir spænska stórliðið Barcelona, 4-0.

Sadio Mane, Divock Origi og Marko Grujic skoruðu mörk Liverpool auk þess að Javier Mascherano skoraði sjálfsmark gegn sínu gömlu félögum.

Liverpool lék við hvurn sinn fingur og spilaði oft á tíðum frábæra knattspyrnu. Sadio Mane átti góðan leik í liði Liverpool, en hann gekk í raðir Liverpool frá Southampton í sumar.

Bekkurinn á Wembley var þéttsettinn, en þetta er annar stærsti leikur í sögu Wembley.

Öll mörkin úr leiknum má sjá í sjónvarpsglugganum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×