Íslenski boltinn

Sjáðu lúxusmark Sigríðar Láru og öll mörkin í 10. umferð | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Blikar eru áfram í 2. sæti Pepsi-deildar kvenna.
Blikar eru áfram í 2. sæti Pepsi-deildar kvenna. vísir/hanna
Tíunda umferð Pepsi-deildar kvenna fór fram á þriðjudagskvöldið.

Staðan á toppnum hélst óbreytt en þrjú efstu liðin, Stjarnan, Breiðablik og Valur, unnu öll sína leiki.

FH vann gríðarlega mikilvægan sigur á ÍA í botnbaráttunni og ÍBV gerði góða ferð á Selfoss og sneri aftur til Eyja með öll þrjú stigin í farteskinu.

Farið var yfir alla leikina í 10. umferð í Pepsi-mörkum kvenna í gær.

Helena Ólafsdóttir, Vanda Sigurgeirsdóttir og Þorkell Máni Pétursson völdu m.a. mark umferðarinnar. Það skoraði Eyjakonan Sigríður Lára Garðarsdóttir gegn Selfossi.

Það mark má sjá hér að neðan sem og markasyrpu með öllum 19 mörkunum sem voru skoruð í 10. umferð Pepsi-deildar kvenna.

Mark 10. umferðar Markasyrpa 10. umferðar

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×