Innlent

Sjáðu jökulinn hopa: Jökulsárlón breytist sífellt hraðar í fjörð

Samúel Karl Ólason skrifar
Hlýr sjór flæðir inn í lónið og bræði jaka og jökulinn hraðar.
Hlýr sjór flæðir inn í lónið og bræði jaka og jökulinn hraðar. Vísir/Valgarður

Náttúruperlan Jökulsárlón kom fyrst í ljós á fjórða áratug síðustu aldar, þegar jökullinn fór að hopa í kjölfar litlu ísaldarinnar svokölluðu. Jökullinn hefur sífellt hopað síðan en einstaklega hratt á síðustu tíu árum. Á endanum verður lónið, sem er það dýpsta á Íslandi, að löngum firði.

Um árið 1890 var jökullinn yfir lóninu einungis um 250 metra frá sjónum. Svo sást lónið fyrst 1934 og hefur það verið að vaxa síðan. Nú nær það einhverja sjö til átta kílómetra frá sjónum, en það gæti á endanum orðið um 25 kílómetra langt og fimm kílómetra breitt.

Helgi Björnsson jarðeðlisfræðingur segir hopið hafa verið sérstaklega hratt frá árinu 1995. Stækkun Jökulsárlóns séu greinilegustu ummerkin um hlýnun á Íslandi. Það sé þó meira en hlýrra loftslag sem spili inn í þar sem hlýr sjór kemst einnig inn í lónið á flóði.

„Það sem gerist er að jökullinn streymir þarna niður í lón og það brotnar stöðugt af honum. Jökullinn hefur ekki undan því að bæta upp það sem brotnar af og þess vegna hopar hann. Allir jakar sem brotna þarna af sigla bara á lóninu og bráðna svo að lokum,“ segir Helgi.

Sjá einnig: Sjáðu hvernig Ísland og jörðin hefur breyst á 32 árum.

Hér má sjá hvernig jökullinn hefur hopað af lóninu á síðustu 32 árum.

Búið er að mæla hvað lónið nær langt undir jökulinn. Frá brúnni yfir Jökulsá er landið undir jöklinum tvö til þrjú hundruð metra undir sjávarmáli í mjórri rennu, sem er um fimm kílómetra breið, alla leið upp undir fjöllin. Sú leið er um 25 kílómetrar.

„Fram undan er að þetta lón vaxi og vaxi,“ segir Helgi. Hann segir að væntanlega muni ekkert stöðva þessa þróun. Það sé vonlaust fyrir jökulinn að halda í við það sem brotnar framan af honum.

„Væntanlega verður 25 kílómetra langur fjörður þarna inn eftir.“ Hann bætir þó við að líklegast verði þó renna sem loki honum við sjóinn, eins og hún er í dag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×