Innlent

Situr beggja vegna borðs í skiptum við Gámaþjónustu

Sveinn Arnarsson skrifar
Sveitarstjóri Ölfuss tók ákvörðun um að áfrýja úrskurði um að afhenda útboðsgögn sem fyrirtæki í hans eigu fékk.
Sveitarstjóri Ölfuss tók ákvörðun um að áfrýja úrskurði um að afhenda útboðsgögn sem fyrirtæki í hans eigu fékk.
Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóri Ölfuss, átti persónulega hlut í Gámaþjónustunni þegar hann tók ákvörðun um að neita að afhenda Íslenska gámafélaginu gögn.Úrskurðarnefnd um upplýsingamál úrskurðaði á þá leið að sveitarfélaginu bæri að afhenda Íslenska gámafélaginu gögn í útboði Ölfuss þar sem Gámaþjónustan varð hlutskörpust.

Ákvörðun Gunnsteins R. Ómarssonar fór á sínum tíma ekki fyrir bæjarstjórn sveitarfélagsins né bæjarráð, heldur tók hann þessa ákvörðun einn sem framkvæmdastjóri sveitarfélagsins.

„Já, það er rétt, ég á sjálfur hlut í Gámaþjónustunni og hef aldrei farið dult með það,“ segir Gunnsteinn

Gunnsteinn r. Ómarsson Sveitarstjóri Ölfuss
Þegar Gunnsteinn er spurður hvort það hafi ekki haft áhrif á hæfi hans til að fara með málið, sem er nátengt persónulegum hagsmunum hans sem hluthafa í Gámaþjónustunni, segir hann að það hafi ekki skipt máli. „Nei, það hafði ekki áhrif, ég vann þetta í umboði sveitarstjórnar eins og margoft hefur komið fram,“ segir bæjarstjórinn. 

Í stjórnsýslulögum er tekið á hæfi sveitarstjórnarmanna. Þar segir í þriðju grein laganna að starfsmaður sé vanhæfur ef að fyrir hendi eru þær aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu. Tryggvi Þórhallsson, lögfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur málavöxtu óheppilega. 

„Það er óheppilegt að ráðnir sveitarstjórar taka að sér afgreiðslu mála þar sem hægt er að draga hæfi þeirra í efa,“ segir Tryggvi. 

Hagsmunir sveitarfélagsins óverulegir

Íslenska gámafélagið vildi fá að sjá hvaða forsendur lágu að baki útboði Gámaþjónustunnar í sorphirðu Ölfuss. Ölfus neitaði að afhenda gögnin keppinaut Gámaþjónustunnar.

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók undir með Íslenska gámafélaginu og úrskurðaði að sveitarfélaginu væri skylt að afhenda gögnin. Samt sem áður neitaði bæjarstjóri Ölfuss að afhenda gögnin og kærði úrskurðinn til dómstóla. 



Í viðtali við Fréttablaðið þann 3. september síðastliðinn sagði Gunnsteinn R. Ómarsson, bæjarstjóri Ölfuss, að hagsmunir sveitarfélagsins í þessu máli væru óverulegir, en að sama skapi væru hagsmunir Gámaþjónustunnar nokkuð ríkir.

„Við gerum þetta vegna þess að viðsemjandi okkar telur álitamál hvort eigi að láta þessar upplýsingar í té og óskar eftir því að haldinn sé trúnaður við fyrirtækið,“ sagði Gunnsteinn.

Hefur ekki áhrif á hæfi sveitarstjóra

Anna Björg Níelsdóttir, formaður bæjarráðs Ölfuss, telur sveitarstjórann hæfan til að taka ákvarðanir sem þessar. Hún muni þó ekki eftir því að Gunnsteinn hafi tilkynnt kjörnum sveitarstjórnarmönnum um að hann ætti sjálfur hlut í Gámaþjónustunni.

„Hann tekur þessa ákvörðun ekki sjálfur. Þó að þetta hafi ekki farið formlega fyrir bæjarstjórn eða bæjarráð þá vorum við með í ráðum þegar ákvörðun var tekin um að áfrýja úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál,“ segir Anna.

Í ársreikningi Gámaþjónustunnar sést að foreldrar hans, Ómar Þórðarson og Friðgerður Friðgeirsdóttir, eiga báðir hlut í fyrirtækinu sem og bróðir hans, Atli Ómarsson. Ef hlutur þeirra er lagður saman eru þau fjórði stærsti hluthafi í fyrirtækinu.


Tengdar fréttir

Slegist um sorpið í Ölfusi

Í nýrri yfirlýsingu frá Gámaþjónustunni er talað um óréttmætar og lítilsigldar árásir á Gunnstein Ómarsson sveitarstjóra Ölfuss, vegna deilu um útboð sem snýr að sorphirðu í sveitarfélaginu.

Sveitarfélagið Ölfus neitar að afhenda útboðsgögn

Ölfus neitar að gefa Íslenska gámafélaginu gögn um útboð á sorpmálum. Gámaþjónustan bauð lægst og fékk verkið. Úrskurðarnefnd tekur undir með Íslenska gámafélaginu en sveitarfélagið ætlar að kæra þann úrskurð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×