Lífið

Sigurður Ingi hefur vakið athygli fyrir skrautlega hálsklúta og hring á þumalfingri

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson
Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson vísir/Ernir
„Þetta er alls ekki tískutrend, hann er með hálsbólgu, og er hálf veikur, annars er hann bindismaður. Hann passar að vera með bindi þegar hann er á þingi. Svo ef þú sérð hann með hálsklút er hann með hálsbólgu,“ segir Elsa Ingjaldsdóttir, eiginkona Sigurðar Inga Jóhannssonar forsætisráðherra Íslands, aðspurð hvort Sigurður væri að koma á framfæri nýrri klútatísku þar sem hann hefur verið með klút vafinn þétt um hálsinn síðustu daga.

Sigurður Ingi Jóhannesson yfirgefur stjórnarráðið.
Sigurður Ingi hefur verið áberandi síðustu daga og tók í gær við sem forsætisráðherra eftir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson steig til hliðar. En hvernig týpa er Sigurður?

„Það er alveg á hreinu að honum líður best í reiðbuxunum og flís­peysunni. Hann fer auðvitað í fallega skyrtu og setur upp bindi þegar hann fer á þing en reiðbuxurnar og flíspeysan verður allaf fyrir valinu hér heimafyrir,“ segir Elsa.

Eins og flestir hafa tekið eftir ber Sigurður þykkan gullhring á þumalfingri og hafa margir velt fyrir sér hvort einhver merking sé bak við staðsetningu hringsins.

„Þetta er giftingarhringurinn hans, bara hefðbundinn giftingarhringur. Sigurður er með sömu puttastærð á baugfingri og þumalfingri sem þykir mjög sjaldgæft. Þetta er heiðinn siður, en það er ekki eins og hann sé heiðinn heldur finnst honum hringurinn flækjast minna fyrir sér á þumalfingri, því sem dýralæknir gekk hann aldrei með hring.

Þegar hann fór á þing fór hann að bera hringinn oftar og þá setti hann hringinn á þumalfingur. Hann fiktar mikið í honum og skiptir honum á milli fingra,“ segir Elsa og hlær.

Hér gefur að líta Sigurð Inga Jóhannsson með klútinn fræga. Það hefur vakið sérstaka athygli að hann var bæði með klút og trefil á leið sinni út úr stjórnarráðinu.
Þumalhringir eiga upphaf sitt við lok steinaldar í Austurlöndum fjær og voru þar upphaflega notaðir af bogmönnum sem notuðu þá til verja þumalinn fyrir bogastrengnum. Í gegnum aldirnar hefur þumalhringurinn lifað áfram og m.a. notaður til að tákna ákveðna stöðu innan samfélagsins.

Margir vilja meina að þumalhringurinn hafi symbólska merkingu; að hann tákni völd. Það að valdamesti maður Íslands kjósi að bera þumalhring er vissulega vísbending um að þetta geti verið rétt.

Saga hálsklúta nær a.m.k. aftur til Rómar til forna þar sem þeir voru notaðir til að þurrka svita af enni og hálsi. Hermenn í veldi Cheng Kínakeisara báru hálsklúta sem tákn um stöðu sína innan hersins. Nokkru síðar, eða á 17. öld, voru það króatískir málaliðar sem notuðu hálsklúta.

Þessu öpuðu Frakkar svo eftir og úr varð tegund klúts sem kallast cravat. Það hefur alltaf verið tengt valdi að bera silkiklút um hálsinn: allt frá hálsbindum, eins og flestir karlmenn á þingi eru með, yfir í klúta eins og þann sem Sigurður Ingi hefur sést með síðustu daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×