Handbolti

Sigurbjörg: Höfðum gott af fríinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sigurbjörg átti góðan leik fyrir Fram í kvöld og stýrði spilinu af mikilli festu.
Sigurbjörg átti góðan leik fyrir Fram í kvöld og stýrði spilinu af mikilli festu. vísir/ernir
„Þetta var rosaleg spenna þarna í lokin. Þetta var dálítið sveiflukenndur leikur,“ sagði Sigurbjörg Jóhannsdóttir, fyrirliði Fram og leikstjórnandi, eftir sigurinn í Flugfélag Íslands-deildarbikarnum í samtali við íþróttadeild 365.

„Við byrjuðum þetta illa og vorum svo komnir í góða stöðu þarna í fyrri hálfleik, en það er eins og spennustigið hafi orðið of hátt um miðbikð í síðari hálfleik.“

„Það virtist vera komin smá þreyta í okkur. Við fórum að gera mistök og okkur var refsað. Þá er ofboðslega stutt í hættu,“ en Fram hefur enn ekki tapað leik það sem af er keppnistímabili. Sigurbjörg segir að Fram sé að verða sterkari og sterkari sem ein liðsheild.

„Við erum alltaf að læra og við erum orðnar gífurlega sterkar í því að leysa úr erfiðum stöðum og komum til baka og náum að klára þessa leiki.“

Sjá einnig:Umfjöllun: Fram - Stjarnan 23-22 | Fram varði titilinn

Þetta er annað árið í röð sem Fram vinnur þennan deildarbikar og segir Sigurbjörg að þær hafi einfaldlega gaman af þessum leikjum milli jóla og nýárs.

„Við þurfum alltaf að vinna fyrir honum og við höfum gaman að þessum leikjum milli jóla og nýárs, þannig að það er vonandi að við höldum þessu áfram.“

Aðspurð hvort Fram-stúlkur hafi eitthvað vilja fara í þetta frí sem var í desember taplausar sagði Sigurbjörg þær hafi haft gott af smá hvíld.

„Við höfðum gott af fríinu og ég held að við höfum gert það. Það verður mjög erfitt að koma inn í seinni hlutann svona taplausar. Auðvitað vilja allar vinna okkur og þá er enn mikilvægara fyrir okkur að halda einbeitingu,“ sagði Sigurbjörg að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×