Fótbolti

Sigur í síðasta deildarleik Klopp með Dortmund | HSV í umspil

Anton Ingi Leifsson skrifar
Klopp gat leyft sér að fagna í dag.
Klopp gat leyft sér að fagna í dag. vísir/getty
Freiburg og Paderborn eru fallin úr þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en síðasta umferðin fór fram í dag. Jürgen Klopp vann í sínum síðasta deildarleik með Borussia Dortmund.

Spennan var óbærileg fyrir lokaumferðina. Fimm lið gátu fallið fyrir lokaumferðina, en niðurstaðan varð sú að Freiburg og Paderborn féllu niður um deild.

Hamburger SV vann góðan sigur á Schalke 04, en Ivica Olic og Slobodan Rajkovic tryggðu HSV 2-0 sigur. Með sigrinum fara þeir upp í sextánda sætið, en það sæti fer í umspil um laust sæti í þýsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Shinji Kagawa kom Dortmund yfir á fimmtándu mínútu og Pierre-Emerick Aubameyang bætti við öðru marki tveimur mínútum síðar áður en gestirnir minnkuðu muninn.

Henrik Mkhitaryan kom Dortmund í 3-1 og þannig var staðan í hálfleik. Theodor Gebre Selassie minnkaði aftur muninn fyrir Brimara, en lokatölur 3-2.

Með sigrinum endar Dortmund í sjöunda sæti deildarinnar, en þeir byrjuðu tímabilið afleitlega. Á tímapunkti leit út fyrir að þeir væru á leið í Evrópudeildina, en Augsburg vann að lokum Borussina Mönchengladbach og tryggði sér Evrópudeildarsæti.

Meistararnir í Bayern Munchen unnu 2-0 sigur á Mainz 05 eftir erfitt gengi að undanförnu. Robert Lewandowski kom Bayern yfir af vítapunktinum og Bastian Schweinsteiger bætti við síðari marki Bayern í upphafi síðari hálfleik.

Öll úrslit dagsins:

Borussia Dortmund - Werder Bremen 3-2

Borussia Mönchengladbach - Augsburg 1-3

Eintracht Frankfurt - Bayer Leverkusen 2-1

FC Köln - Wolfsburg 2-2

Hamburger SV - Schalke 04 2-0

Hannover 96 - Freiburg 2-1

Hoffenheim - Hertha Berlin 2-1

Paderborn - VfB Stuttgart 1-2

Bayern Munchen - Mainz 05 2-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×