Erlent

Síðasta skýlið rifið í Frumskóginum

Samúel Karl Ólason skrifar
Einungis á eftir að ryðja braki og rusli á brott og verður niðurrifi búðanna þá lokið.
Einungis á eftir að ryðja braki og rusli á brott og verður niðurrifi búðanna þá lokið. Vísir/AFP
Búið er að rífa niður síðasta skýlið í flóttamannabúðunum sem ganga undir nafninu Frumskógurinn í Frakklandi. Einungis á eftir að ryðja braki og rusli á brott og verður niðurrifi búðanna þá lokið. Rúmlega sjö þúsund flóttamenn og farandfólk hélt til í búðunum þegar niðurrif þeirra hófst í síðustu viku.

Um 1.500 börn undir lögaldri halda þó enn til í sérstökum gámum á svæðinu en Francois Hollande, forseti Frakklands, segir að þau verði færð um set, eins og aðrir íbúar búðanna, fljótlega. Samkvæmt BBC segjast góðgerðasamtök hafa útvegað börnunum mat og drykk þar sem stuðningur yfirvalda sé ekki nægjanlegur.

Yfirvöld Frakklands og Bretlands eiga nú í deilum um hvert farið verði með börnin. Fólkið sem hélt til í Frumskóginum í Calais í Frakklandi var á leið til Bretlands og komst ekki lengra.

Þá hafa sambærilegar, en mun smærri, búðir hafa sprottið upp í París á síðustu dögum en Hollande hefur heitið því að þær verði einnig rifnar niður.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×