Enski boltinn

Shearer hefur engu gleymt | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Alan Shearer lagði skóna á hilluna fyrir níu árum síðan en hann sýndi í fríi með fjölskyldu sinni að hann hefur engu gleymt.

Sonur hans, Will, birti meðfylgjandi myndband á Twitter-síðu sinni en þar sést Shearer eldri klára erfitt skot, sem fagnaði afrekinu á sama hátt og mörkunum sínum forðum.

Shearer er langmarkahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar með 260 mörk en næstur á listanum er Andy Cole með 187 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×