Tíska og hönnun

Shadow Creatures styðja við bakið á konum í afríku

Edda og Sólveig Ragna Guðmundsdætur hanna undir heitinu Shadow Creatures. Hluti af hverri seldri flík mun renna til Kríunnar, þróunarsamtaka í þágu kvenna í Afríku.
Edda og Sólveig Ragna Guðmundsdætur hanna undir heitinu Shadow Creatures. Hluti af hverri seldri flík mun renna til Kríunnar, þróunarsamtaka í þágu kvenna í Afríku. fréttablaðið/daníel
Systurnar Edda og Sólveg Ragna Guðmundsdætur sem hanna undir nafninu Shadow Creatures hafa tekið höndum saman við Kríurnar, þróunarsamtök í þágu kvenna í Afríku. Hluti af hverri seldri flík frá systrunum mun renna til styrktar málefnum Kríanna.

Edda og Sólveig Ragna hanna fallegar kvenmannsflíkur meðal annars úr silki og lífrænni bómull og hafa umhverfisvæna framleiðslu að leiðarljósi í hönnun sinni. Edda segir Kríurnar hafa haft samband við systurnar að fyrra bragði og þær ákveðið að leggja samtökunum lið enda séu baráttumál þeirra brýn.

„Þetta eru ung samtök sem styðja með ýmsum ráðum við konur í Afríku og beita sér sérstaklega fyrir menntun og heilsu þeirra. Við tókum auðvitað mjög vel í bón þeirra enda er þetta verðugur málstaður og gaman að geta lagt honum lið.“

Ný lína frá Shadow Creatures kom nýlega í verslunina Kiosk við Laugaveg og inniheldur meðal annars fallega síðkjóla, klúta, buxur og boli. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×