Handbolti

Selfoss fyrsta liðið í undanúrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hrafnhildur Hanna sækir að marki Gróttu í kvöld.
Hrafnhildur Hanna sækir að marki Gróttu í kvöld. vísir/anton
Selfoss varð í kvöld fyrsta liðið til þess að tryggja sér farseðilinn í undanúrslit Coca Cola-bikarsins í Laugardalshöll.

Selfoss vann þá sætan sigur, 20-21, á Gróttu í háspennuleik.

Jafnt var á með liðunum allan leikinn. Þórey Anna Ásgeirsdóttir hefði getað jafnað leikinn fyrir Gróttu er hálf mínúta var eftir. Hún skaut aftur á móti fram hjá af vítalínunni.

Grátlegt fyrir Þóreyju Önnu sem hafði átt sannkallaðan stórleik og skorað ellefu mörk í leiknum.

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir átti líka stórleik en hún skoraði ellefu mörk rétt eins og Þórey.

Hinir þrír leikirnir í átta liða úrslitunum fara fram annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×