Bíó og sjónvarp

Sektir fyrir að sýna Wolf of Wall Street

Leonardo DiCaprio
Leonardo DiCaprio Vísir/Getty
Fimm kvikmyndahúsakeðjur í Rússlandi voru sektaðar sem samsvarar um tæplega 13 milljónum íslenskra króna fyrir að sýna myndina The Wolf of Wall Street, í leikstjórn Martins Scorsese þvert á lög sem banna auglýsingu á ólöglegum eiturlyfjum.

Samkvæmt grein The Moscow Times segir að málið hafi þó eingöngu verið sótt í þriðju stærstu borg Rússlands, Novosibirsk, þar sem búa ein og hálf milljón manna, en um var að ræða tíu kvikmyndahús í borginni.

Aðgerðin hefur verið fordæmd af Kinoalliance, samtök rússneskra leik- og kvikmyndahúsa. Samtökin gáfu frá sér tilkynningu þar sem þau sögðu að mikilvægara væri að berjast gegn neyslu ólöglegra eiturlyfja, frekar en að ráðast á kvikmyndir fyrir meintan áróður.

Kvikmyndahúsakeðjurnar sem um ræðir munu að öllum líkindum áfrýja dómnum á þeim grundvelli að The Wolf of Wall Street var leyfð af menningarmálaráðuneytinu þar í landi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×