Sport

Sektaður fyrir fagnaðarlætin

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Miller nær hér að taka niður Alex Smith, leikstjórnanda Kansas City Chiefs.
Miller nær hér að taka niður Alex Smith, leikstjórnanda Kansas City Chiefs. Vísir/Getty
Von Miller, einn öflugasti varnarmaður Denver Broncos, var í dag sektaður um 11.567 dollara, tæplega 1,5 milljón íslenskra króna fyrir fagnaðarlæti sín eftir að hafa fellt leikstjórnanda Kansas City Chiefs í leik liðanna á dögunum.

NFL-deildin tekur harkalega á því að leikmenn liðanna séu að strá salti í sár andstæðinganna og geta leikmenn sem sýna af sér slík tilbrigði átt von á refsingum, jafnvel fjársektum.

Von Miller fagnaði með sérstökum dans eftir að hafa náð að fella Alex Smith í leik liðanna á dögunum og hefur NFL-deildin ákveðið að sekta hann fyrir danssporin.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×