Fótbolti

Sektaðir fyrir að ráðast á bíla leikmanna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Þeim stuðningsmönnum sem létu höggin dynja á bílum leikmanna Real Madrid eftir tap liðsins gegn Barcelona um síðustu helgi hefur verið refsað.

Stuðningsmennirnir biðu leikmannanna, þeirra á meðal Jese og Gareth Bale, er þeir óku í burtu frá æfingasvæði félagsins eftir að liðið sneri aftur frá Barcelona á sunnudagskvöldið.

Þrír stuðningsmenn hafa verið sektaðir af sérstakri nefnd spænsku ríkisstjórnarinnar sem vinnur að því að útrýma ofbeldi úr íþróttum. Þeim hefur einnig verið bannað að sækja íþróttaleiki í sex mánuði.

Einn þremenninganna er meðlimur í Real Madrid og var strax settur í bann þar til að afstaða verði tekin til þess hvort eigi að reka manninn úr félaginu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×