Tónlist

Segja rappið hunsað: Tónlistarfólk ósátt við tilnefningarnar

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Tónlistarfólk gagnrýnir tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Tónlistarfólk gagnrýnir tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna, sem kunngjörðar voru síðdegis, hafa verið gagnrýndar harðlega víða á samfélagsmiðlum í dag. Ósættið snýr meðal annars að því hversu fáar tilnefningar fóru til rapptónlistar, nú þegar íslenskt rapp hefur sjaldan eða aldrei verið vinsælla.

Nokkur umræða hefur verið um málið á Twitter undir kassamerkinu #hoodístón og virðist fólk sammælast um það að Gísli Pálmi, MC Gauti og Reykjavíkurdætur hefðu átt að fá tilnefningu í ár.

„Leiðinlegt að sjá hvað rapptónlist og elektróník er sniðgengin á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár. Einungis tvær rappgrúppur fá tilnefningu, Sturla Atlas og Úlfur Úlfur. Á ári rappsins 2015,“ segir Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður á Facebook-síðu sinni.

Leiðinlegt að sjá hvað rappmúsík og elektróník er sniðgengin á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár. Einungis tvær rappgr...

Posted by Logi Pedro Stefánsson on 5. febrúar 2016
Halldór Halldórsson grínisti, eða Dóri DNA, tekur í sama streng. „Hvernig getur ár íslenskt rapps ekki endurspeglast í íslensku tónlistarverðlaununum? Íslensku hausinn í rassgatinu á sér verðlaun ársins,“ segir hann á Twitter.

Þá furðar Pálmi Ragnar Ásgeirsson, meðlimur í upptökuteyminu StopWaitGo, sig á því skilyrði að lag þurfi að vera partur af plötu til að þeir sem framleiði það geti hlotið tilnefningu. Hópurinn á mörg af vinsælustu lögum ársins og segir hann viðhorfið heldur forneskjulegt.

Með mörg af vinsælustu íslensku lögum síðasta árs (Lítil skref, Í síðasta skipti, No More, Party, Skál fyrir þér, Rauða...

Posted by Pálmi Ragnar Ásgeirsson on 5. febrúar 2016
Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent 4.mars næstkomandi, en tilnefningarnar má sjá hér.

Fleiri ummæli má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×