Innlent

Segja bæjarsjóð verða af tekjum

Útsvarsheimild er ekki fullnýtt.
Útsvarsheimild er ekki fullnýtt. Fréttablaðið/Pjetur
Fulltrúar meirihluta D-lista í bæjarráði Vestmannaeyja segja minnihluta E-lista ekki geta rökstutt fullyrðingar um að lækkun útsvars komi niður á framlögum til bæjarins frá jöfnunarsjóði.

„E-listinn leggur ekki fram neina útreikninga til að styðja við fullyrðingar sínar,“ bókuðu D-listamenn en E-listinn sagði jöfnunarframlög aðeins fást ef heimildir til álagningar útsvars væru fullnýttar. „Það er því ekki óeðlilegt að fulltrúar E-listans líti svo á að þegar Vestmannaeyjabær fullnýtir ekki tekjustofna sína, komi til skerðingar á framlögum úr jöfnunarsjóði.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×