Segir skýringu Bjarna bónda vera tómt rugl 12. desember 2012 07:00 Myndin er tekin á Brúarreykjum 15. nóvember, viku eftir síðustu eftirlitsferð héraðsdýralæknis. „Þá var búið að þrífa og allt var í lagi,“ sagði bóndinn í Fréttablaðinu í gær. Matvælastofnun taldi ekki nóg að gert. Mynd/Matvælastofnun
Forgangsverk að bæta aðstöðu kúnna á Brúarreykjum, segir framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Vesturlands. Ráðunautur hafi viljað svipta búið leyfi í fyrra. „Hann getur ekki neinum öðrum um kennt en sjálfum sér,“ segir Guðmundur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsamtaka Vesturlands, um stöðu bóndans á Brúarreykjum sem sviptur var starfsleyfi fyrir kúabúi sínu. Bjarni Bærings Bjarnason á Brúarreykjum skýrði í Fréttablaðinu í gær hrikalega stöðu á búi sínu þegar héraðsdýralæknir kom þangað í eftirlit 8. nóvember. Þá stóðu kýrnar, sem eru níutíu í sextíu gripa fjósi, í eigin mykju upp á legg. Sagðist Bjarni hafa verið að aðstoða sjö eða átta kýr við að bera í tvo sólarhringa þar á undan og ekki hafa haft tíma til að hreinsa frá skepnunum. „Það er bara rugl,“ segir Guðmundur um skýringar Bjarna. „Þetta er ekkert sem gerðist á tveimur sólarhringum, það er alveg á hreinu.“ Að sögn Guðmundar hefur lengi verið ófremdarástand á Brúarreykjum. Fjósið hafi verið í ólestri árum saman. Ráðunautur frá Búnaðarsambandi Vesturlands hafi heimsótt bæinn í fyrra og þá hafa viljað að lokað yrði á reksturinn. „Það var að minnsta kosti ástæða til þess þá. Honum var gefinn frestur en hann gerði ekki neitt og hefur aldrei gert neitt sem hann hefur verið beðinn um að laga.“ Guðmundur segist ekki sjálfur hafa skoðað ástandið á Brúarreykjum. „Ég held að þær hafi fengið nóg að éta en það er náttúrulega ljóst að þeim líður illa,“ segir Guðmundur og vísar til þess hversu yfirgengileg fljótandi mykjan sé. „Kýr þurfa að vera á þurrum legubásum. Yfirleitt er það þannig að legubásarnir eru þurrir og menn setja spæni eða sag undir kýrnar.“ Bættur aðbúnaður kúnna á Brúarreykjum er nú til umræðu. Guðmundur segir sveitarfélagið Borgarbyggð þurfa að koma að því máli en að Búnaðarsamtökin muni aðstoða. Þótt gripirnir séu of margir sé bærinn í sláturbanni og því ekki hægt að fækka þeim þannig. „Ég býst við að fjósið verði hreinsað og lagað þannig að þær geti verið þarna áfram en það þyrfti eitthvað af gripum að fara frá,“ segir Guðmundur sem kveður alveg óljóst hvort einhverjir vilji taka við umframgripunum. Möguleiki sé að farga einhverjum skepnum en það sé þó yfirleitt ekki gert nema þær séu illa haldnar. Aðspurður fullyrðir Guðmundur að ástandið á Brúarreykjum sé einsdæmi, að minnsta kosti í hans héraði. Dýralæknir skoði fjós reglulega. „Ég er ekki að segja að það sé ekki einhvers staðar slæmt en það er mjög óvíða sem svona kemur upp. Það getur vel verið að einhverjir séu á frestum út af einhverjum tæknilegum atriðum en ekki vegna aðbúnaðar beint. Ég vil segja að yfirgnæfandi meirihluti kúabúa sé í lagi hér.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent Segist saklaus Innlent „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Innlent Óvissustig í Súðavíkurhlíð Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Innlent Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Innlent Fleiri fréttir Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Segist saklaus Djúpstæður ágreiningur og íþróttasalur umbreytist í tónleikahöll Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Sakar minnihluta um ódýra pólitík í aðdraganda kosninga „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími“ Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Þarf að greiða þriggja milljóna málskostnað parsins Stefán Vagn leiðir þingflokk Framsóknarflokksins Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Skólameistarinn fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Refsingar Shamsudin-bræðra og Samúels þyngdar Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Fyrsti listi Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Lítið breytt staða á bráðamóttökunni Sjá meira