Innlent

Segir sjúkraþyrlu geta skipt sköpum í sambærilegum slysum

Hersir Aron Ólafsson skrifar
Framkvæmdastjóri aðgerðasviðs hjá Landhelgisgæslunni segir ekki inni í myndinni að brjóta reglur um hvíldartíma þyrluáhafna þótt upp komi neyðartilfelli. Ákjósanlegt væri þó að hafa tvær áhafnir til taks meirihluta ársins. Sjúkraflutningamenn kalla eftir sérhæfðri sjúkraþyrlu á Suður- og Vesturlandi.

Líkt og fram hefur komið var ekki hægt að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar á sunnudag þegar tveir erlendir ferðamenn létust í slysi við sunnanvert Þingvallavatn, þar sem áhöfn uppfyllti ekki skilyrði um lágmarks hvíldartíma.

Frétt Vísis: Ekki hægt að senda þyrluna á Þingvallavatn vegna lágmarks hvíldartíma áhafnarinnar

Ferðamennirnir, karl og kona á fimmtugsaldri, voru við veiðar ásamt tíu manna hóp á svæðinu. Konan féll út í vatnið, en karlinn stökk út í á eftir og reyndi að bjarga henni, en örmagnaðist á sundi. Fólkið var flutt með sjúkrabíl á Landspítalann þar sem þau voru úrskurðuð látin. Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, segir ekki koma til greina að hvika frá lögboðnum hvíldartíma.

„Það er byggt á alþjóðlegum tilskipunum og svo íslenskum reglugerðum sem byggja á þeim. Það er ekki inni í myndinni að brjóta þau ákvæði,“ segir Ásgrímur.

Maðurinn sem féll í Ölfusá enn ófundinn

Þyrlan hafði verið kölluð út á aðfaranótt sunnudags vegna manns sem féll í Ölfusá og kom ekki til Reykjavíkur fyrr en á sunnudagsmorgun. Maðurinn er enn ófundinn, en leit var frestað í dag vegna veðurs og hefst aftur í fyrramálið. Ásgrímur segir ákjósanlegt að tvær áhafnir séu helst alltaf til taks, en unnið er að fjármögnun þess í samstarfi við dómsmálaráðuneytið.

„Á nokkrum árum hafa útköll Landhelgisgæslunnar farið úr um 150 – 160 í 250 – 260,“ segir Ásgrímur.

Fagráð leggur til sérhæfða þyrlu

Fagráð sjúkraflutninga hefur lagt til rekstur sérstakrar sjúkraþyrlu sem staðsett yrði á Suðurlandi. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra var jákvæð fyrir hugmyndunum þegar þær voru kynntar í apríl, en gaf hins vegar ekki kost á viðtali í dag.

„Já það er til skoðunar, það er eitt af því sem ég hef verið með á mínu borði,“ sagði Svandís í samtali við kvöldfréttir í apríl.

Frétt Stöðvar 2: Heilbrigðisráðherra skoðar rekstur sérstakrar sjúkraþyrlu

Styrmir Sigurðarson, yfirmaður sjúkraflutninga á Suðurlandi, segir að viðbragðstími gæti styst umtalsvert með sérhæfðri þyrlu.

„Við höfum verið að benda á að staðarvöktuð sérhæfð sjúkraþyrla getur skipt sköpum í svona tilfellum, þar sem við viljum fá sérhæft viðbragð bráðatæknis og bráðalæknis sem fyrst. Hún getur skipt sköpum í svona tifellum eins og kom upp um helgina,“ segir Styrmir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×