Innlent

Segir innanríkisráðherra þurfa að virða skipulagsvald Reykjavíkur

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Reykjavíkurborg fer með skipulagsvald á flugvallarsvæðinu og það verður innanríkisráðherra að virða eins og aðrir. Þetta segir formaður borgarráðs sem telur að áætlanir um íbúabyggð í Vatnsmýrinni standist og flugvöllurinn verði farinn þaðan árið 2024.

Reykjavíkurborg ætlar að þétta byggð á næstu 18 árum og meðal annars eiga 7 þúsund íbúðir að rísa í Vatnsmýrinni. Innanríkisráðherra sagði í fréttum okkar í gær að útilokað sé að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýrinni án samþykkis ríkisins en það eigi landið að mestu. Þá telur hann það óráð að borgin skipuleggi þar íbúðahverfi.

„Innanríkisráðherra er auðvitað frjálst að hafa sína skoðun og við virðum hana en Reykjavíkurborg fer með skipulagsvaldið á svæðinu og það verður ráðherra að virða eins og aðrir," segir Dagur B. Eggertsson, oddviti borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar.

Skoðanakönnun sem gerð var fyrir hálfu ári sýndi að yfir áttatíu prósent landsmanna vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni. Dagur segir það ekki hafa áhrif á áætlanir borgarinnar.

„Þetta hefur nú verið kannað í sérstakri kosningu þar sem meirihlutinn vildi að flugvöllurinn vildi þannig að skoðanir hafa sveiflast í þessu," segir Dagur.

Núgildandi aðalskipulag borgarinnar gerir ráð fyrir að flugvöllurinn verði farinn úr Vatnsmýrinni eftir 12 ár. Drög að breytingum á aðalskipulaginu verða birt í haust. Dagur á þó ekki von á að breyting verði þar á skipulagi í Vatnsmýrinni og að flugbrautum verði fækkað strax eftir 4 ár.

„Þá víkur hann í áföngum á árunum 2016 til 2024," segir Dagur. Þannig að hann verður alveg farinn árið 2024? „Miðað við það, já," svarar hann.


Tengdar fréttir

Útilokað að flugvöllurinn fari án samþykkis ríkisins

Innanríkisráðherra segir útilokað að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýri án samþykkis ríkisins, enda eigi ríkið landið að mestu. Það sé því óráð hjá borgarstjórn að skipuleggja þar íbúðahverfi, auk þess vilji yfirgnæfandi meirihluti borgarbúa halda flugvellinum. Borgarstjórn Reykjavíkur boðar nú þéttingu byggðar með fjórtán þúsund nýjum íbúðum á næstu 18 árum, þar af á helmingurinn, eða um sjö þúsund íbúðir, að rísa í Vatnsmýri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×