Segir aðra kosti hafa verið í stöðunni Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. febrúar 2012 12:16 Hafsteinn Karlsson er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar.
Fullyrðingar Rannveigar Ásgeirsdóttur, oddvita Lista Kópavogsbúa, um að engin kostur annar hafi verið í stöðunni en að mynda meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum eru út í hött. Þetta fullyrðir Hafsteinn Karlsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, í tilkynningu sem hann sendi fyrir hönd bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar og VG. Eins og kunnugt er mynduðu Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Listi Kópavogsbúa meirihluta í gær. Hafsteinn segir að Samfylkingin, Vinstri græn og Framsóknarflokkur hafi boðið Lista Kópavogsbúa að minnsta kosti tvívegis í samstarf en Rannveig hafi ekki sýnt því neinn áhuga og neitað að taka þátt í slíkum viðræðum. Þá furða bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar og VG sig á ummælum bæjarfulltrúanna Rannveigar Ásgeirsdóttur og Hjálmars Hjálmarssonar í fjölmiðlum í gær um þá ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar Kópavogs að segja upp bæjarstjóra þar sem þau reyna að þvo hendur sínar af þessari ákvörðun. Fulltrúar Samfylkingarinnar og VG segja að á meirihlutafundi 12. janúar hafi Guðríði Arnardóttur verið falið að ganga á fund bæjarstjóra daginn eftir og ræða við hana um starfslok hennar. Allir sem voru á fundinum hafi verið sammála um það að Hjálmari undanskildum, en hann hafi viljað ræða við bakland sitt um framhaldið. Engu að síður segjast fulltrúar Samfylkingarinnar og VG hafa skilið Hjálmar þannig á fundinum að hann væri samþykkur því að fela Guðríði að ræða við bæjarstjóra.
Mest lesið Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Veður Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Fleiri fréttir Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Sjá meira