Sport

Segir að Conor og Mayweather berjist í september | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Conor McGregor er klár en vill fá jafnmikið borgað.
Conor McGregor er klár en vill fá jafnmikið borgað. vísir/getty
Bandaríski íþróttafréttamaðurinn Colin Cowherd sem sér um og stýrir vinsælum útvarpsþætti sem heitir The Herd fullyrðir að súper-bardagi Floyd Mayweather og Conor McGregor fari fram í september.

Cowherd er einn virtasti íþróttafréttamaður Bandaríkjanna og þekkir vel til innan MMA-heimsins. Hann segist meira að segja vera búinn að panta sér herbergi í Las Vegas þegar bardaginn á að fara fram.

„Það berast fréttir af þessum bardaga eftir tvær vikur. Ég er nú þegar búinn að bóka tvö herbergi 17. og 18. september í Las Vegas. Mínar heimildir herma að bardagi Conor McGregor og Floydmayweather fari fram,“ segir Cowherd.

„Þetta breyttist í síðustu viku. Ég fékk símtal og svo voru mér sendar frekari upplýsingar. Þetta mun gerast í september.“

Cowherd bætir við að Mayweather hafi ekki náð að lokka nógu marga sjónvarpsáhorfendur til að kaupa sér áskrift að síðasta bardaga en „aðeins“ 550.000 manns sáu hann berjast í það sem var talið síðasta skipti. Vanalega reynir Mayweather að fá tvær til þrjár milljónir til að kaupa áskrift.

Conor McGregor hefur sagst vera opinn fyrir því að berjast við Mayweather en hann vill ekki fá neinar sjö milljónir dollara ef Mayweather ætlar að taka inn 100 milljónir eins og Írinn útskýrði.

Ekki verður barist í blönduðum bardagalistum heldur einhverju sem er mun líkara hnefaleikum. Líklega verður um að ræða einfaldan hnefaleikabardaga sem Conor hlakkar til að takast á við.

Conor er ekki enn kominn með MMA-bardaga eftir að tapa fyrir Nate Diaz fyrr á þessu ári og gengur Dana White, forseta UFC, illa að fá Diaz til að samþykkja annan bardaga við Conor eftir allt sem á undan er gengið.

Hér að neðan má sjá Colin Cowherd útskýra hvers vegna hann telur að Conor og Mayweather berjist í september.

MMA

Tengdar fréttir

Mayweather býður Conor 6,2 milljarða fyrir Nýársbardaga

Bandarískir fjölmiðar halda áfram að skrifa um mögulegan tröllabardaga á milli boxarans Floyd Mayweather og bardagamannsins Conor McGregor en það er ljóst að margir gætu grætt mikla pening fari slíkur bardagi einhvern tímann fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×