Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Frá 1. janúar 2024 til 31. maí 2026 lauk 64 eftirlitsmálum á lækna og tannlækna vegna lyfjaávísana. Einu máli lauk með takmörkun á starfsleyfi. Innlent 10.6.2026 10:03
Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Jón Ferdínand Estherarson er nýr formaður Sósíalistaflokksins eftir að hann lagði Sæþór Benjamín Randalsson í formannskjöri á aðalfundi flokksins um helgina. Umfangsmiklar breytingar á lögum flokksins voru samþykktar á fundinum sem var ekki auglýstur út á við. Innlent 10.6.2026 10:03
Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Varðberg, pólska sendiráðið á Íslandi og utanríkisráðuneytið standa í dag að málþingi í Norræna húsinu, þar sem fjallað verður um um öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu. Ísland tekur í júlí við formennsku í Eystrasaltsráðinu (CBSS) af Pólverjum. Innlent 10.6.2026 08:32
Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Dómsmálaráðherra segir samþykkt Alþingis á frumvarpi sínu um brottfararstöð ekki kalla fram sigurtilfinningu. Með stöðinni sé Ísland að uppfylla sínar skuldbindingar en á sama tíma sé úrræðið íþyngjandi ráðstöfun. Innlent 10.6.2026 00:01
Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Þjóðvegasjoppan íslenska er loksins að fá sinn sess í menningarsögu landsins. Á Verslunarminjasafninu á Hvammstanga er heil sjoppa að bætast í flokk safngripa og kannski ein sú merkasta á landinu. Innlent 9.6.2026 23:40
Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Lítilli einkaflugvél hlekktist í lendingu á flugvelli Egilsstaða fyrr í dag með þeim afleiðingum að hjól brotnaði. Flugmaðurinn er óhultur. Innlent 9.6.2026 23:14
Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Ingi Björn Sigurðsson missti eiginkonu sína úr krabbameini fyrir tæpu einu og hálfu ári síðan en hann er enn að fá kröfur frá ríkisstofnun vegna andlátsins. Hann kallar eftir betri samræmingu kerfa. Innlent 9.6.2026 22:30
Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands, hefur fengið boð í átta daga ferð til Kína. Sæþór þakkar djúpan áhuga sinn á Kína því að hann hafi verið valinn sem fulltrúi Íslands á ráðstefnu fyrir unga evrópska leiðtoga. Sæþór hlakkar til að upplifa það öryggi sem ríkir í Kína og ferðast með háhraðlest. Innlent 9.6.2026 22:03
Olíumengun í Kópavogslæk Olíumengun í Kópavogslæk hefur vakið athygli íbúa í bænum. Einn þeirra segir það ekki í fyrsta skipti sem einhvers konar mengun berst í lækinn. Innlent 9.6.2026 21:06
„Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Fjöldi skráðra netbrota hjá lögreglunni fjórfaldaðist á milli áranna 2024 og 2025 og upphæð tjóna af völdum brotanna var tæplega sex hundruð milljónir króna á síðasta ári. Netöryggissérfræðingur segir hægt að nýta gervigreind á mjög slæman hátt. Innlent 9.6.2026 21:00
No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Við hvetjum almenning til að hafna þessum lögum og beita öllum ráðum við að koma í veg fyrir að þau verði færð í framkvæmd,“ segja samtökin No Borders í yfirlýsingu í tengslum við lög sem samþykkt voru á Alþingi í dag sem heimila stjórnvöldum að setja á fót svokallaða brottfararstöð. Samtökin hafa meðal annars beitt sér fyrir réttindum flóttafólks. Innlent 9.6.2026 20:28
Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Íbúi við Hringbraut í Reykjavík hefur ekki lengur tölu á alvarlegum slysum sem hún hefur séð við götuna og segir Hringbraut í núverandi mynd vera líkt og rússnesk rúlletta. Hún segir aðeins eitt til ráða við akstri óábyrgra ökumanna. Innlent 9.6.2026 18:56
Handtekinn á bíl með nagladekkjum Ökumaður var handtekinn í Árbæ fyrr í dag fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Hann hafði þegar verið sviptur ökuréttindum auk þess sem bíllinn var búinn nagladekkjum og án númera. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu. Innlent 9.6.2026 18:29
„Þetta er hreinn uppspuni“ Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Samherja, ætlar ekki að eyða 25 milljónum króna í úthringiver í ágúst líkt og fullyrt er í fyrirsögn ristjórnarpistilsins Orðið á götunni á DV. Innlent 9.6.2026 18:06
Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð Tjón vegna netbrota hljóp á sex hundruð milljónum króna á síðasta ári og fjöldi brotanna fjórfaldaðist milli ára. Hvað veldur slíkum afköstum hjá netþrjótum? Þeir nota gervigreindarforrit til að auðvelda sér verkið. Innlent 9.6.2026 18:00
„Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ „Þar sem ég er í námi í Manchester hef ég fengið að kynnast Uber og þeirra starfsháttum,“ segir Már Gunnarsson í samtali við fréttastofu. „Ég vona af öllu hjarta að það fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi.“ Innlent 9.6.2026 17:59
Umdeild brottfararstöð leidd í lög Umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð er orðið að lögum. Í brottfararstöð munu útlendingar geta sætt frelsissviptingu vegna ákvörðunar um að þeir skuli yfirgefa landið eða meðan mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar. Fjöldi mannúðarsamtaka hefur gagnrýnt frumvarpið, sér í lagi vegna þess að það heimilar frelsissviptingu barna. Slíkri frelsissviptingu eru þó settar þröngar skorður. Innlent 9.6.2026 16:08
Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Fimm karlmenn voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi tíu daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur. Mennirnir eru grunaðir um að hafa staðið að innflutningi kókaíns og amfetamíns með Norrænu. Innlent 9.6.2026 16:05
Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Lögreglan hefur aftur fellt niður rannsókn á málum er tengjast meintum kynferðisbrotum gegn þremur börnum á leikskólanum Múlaborg. Ríkissaksóknari hafði gert lögreglunni að rannsaka málin betur en lögregla segir þá ákvörðun byggða á misskilningi. Innlent 9.6.2026 16:00
Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Icelandair hefur ákveðið að hætta flug til milli Íslands og Kulusuk á austurströnd Grænlands utan sumarmánuðanna. Frá og með áramótum verður aðeins flogið milli maí og október. Innlent 9.6.2026 14:55
Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Nei-sinnar eru æfir vegna Silfurs Ríkisútvarpsins en það var helgað spurningunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Heimsýn, sem berst gegn aðildarviðræðum, hefur sent bréf sem stílað er á Stefán Eiríksson útvarpsstjóra og Stefán Jón Hafstein formann stjórnar Rúv þar sem viðraðar eru þungar áhyggjur af efnistökum Rúv. Innlent 9.6.2026 14:53
Landris og kvikusöfnun heldur áfram Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi með stöðugum hraða að mati Veðurstofu. Hættumat helst óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. Innlent 9.6.2026 14:09
Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, flutti í dag árlega ræðu sína á Alþingi um ósk hans um að listaverkið Svarta keilan, sem stendur við þinghúsið, verði fjarlægð. Hann kveðst ekki hafa trú á öðru en að nýr meiri hluti borgarstjórnar láti verða af því. Innlent 9.6.2026 13:52
Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Suðurlands segja það ekki rétt sem kemur fram í frétt RÚV um að loka eigi hjúkrunardeildunum Fossheimum og Ljósheimum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi og þannig 20 hjúkrunarrýmum. Þau segja fólk ekki þurfa að óttast að vera skilið frá maka eða flutt fjarri heimabyggð. Innlent 9.6.2026 13:52