Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Formaður Eflingar segir áhugaleysi þingmanna um að breyta biðlaunareglum vera sorglegt. Það sé ósanngjarnt að þingmenn fái greiddar milljónir fyrir að segja upp í vinnunni. Innlent 11.6.2026 19:25
Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Eldfim staða er uppi í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti boðar harðar árásir á Íran í nótt og hernám eyju á Persalóa. Ráðamenn segja stigmögnun átakanna verulegt áhyggjuefni og Hormússundi hefur verið lokað, en það getur haft gríðarleg áhrif á efnahagslífið um allan heim. Innlent 11.6.2026 18:12
Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Ingólfur Samúelsson var meðlimur í sex manna hópi sem vísað var út úr flugvél Transavia í morgun vegna ölvunar. Hann neitar því að einhver í hópnum hafi verið drukkinn og hyggst leita réttar síns. Innlent 11.6.2026 18:07
Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Kona á þrítugsaldri sem sakfelld var fyrir stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu gegn starfsmanni á vistheimilinu Vinakoti árið 2022 fær ekki áheyrn Hæstaréttar. Hún taldi málið hafa verulegt almennt gildi þar sem það varðaði mannréttindi minnihlutahóps og þær kröfur sem gera verði til rannsóknar brota þeirra sem standi höllum fæti í samfélaginu. Innlent 11.6.2026 13:14
MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í morgun frá tveimur málum gegn Íslandi. Annað varðar ákæru í kynferðisbrotamáli sem ekki var gefin út og hitt félagafrelsi lyfjafræðings. Innlent 11.6.2026 12:43
Flekahreyfingar innan Samfylkingar Hópur félagsmanna Samfylkingar mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar og lýsir krappri hægri beygju sem hafi ekki verið rædd á vettvangi flokksins. Prófessor í stjórnmálafræði segir flekahreyfingar eiga sér stað innan flokksins. Mikil sóknarfæri séu á vinstri væng stjórnmálanna. Innlent 11.6.2026 12:22
Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Hótun barst skrifstofu Hagkaupa í Skútuvogi í Reykjavík í dag. Lögreglu var gert viðvart og skipaði í kjölfarið að starfsmenn rýmdu skrifstofuna. Sérsveit Ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögreglu vegna málsins. Innlent 11.6.2026 12:01
Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Sveitarstjóri Vesturbyggðar telur að vafi leiki á hvort samningur Vegagerðarinnar heimili það að Baldur sé nýttur til siglinga milli lands og Eyja samhliða Herjólfi. Innlent 11.6.2026 11:44
Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Í hádegisfréttum verður rætt við fulltrúa Samtaka iðnaðarins um matvælaverð hér á landi en Samkeppniseftirlitið segir Íslendinga greiða 55 prósent meira fyrir matarkörfuna en íbúar ESB. Innlent 11.6.2026 11:39
Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028. Innlent 11.6.2026 11:36
Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Hermann Nökkvi Gunnarsson blaðamaður á Morgunblaðinu verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar nýs bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Hann tók einnig þátt í kosningabaráttu Vilhjálms. Innlent 11.6.2026 11:26
Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Vinir Hamraborgar segja það sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað nafn sitt undir undirskriftarlista þar sem skorað er á bæjaryfirvöld að endurskoða áform um þéttingu og uppbyggingu í miðbæ Kópavogs. Einn þeirra segir draumatölu undirskrifta vera 2500 en þegar þetta er skrifað hafa 187 skrifað undir. Innlent 11.6.2026 10:47
Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð Mestu gljúfurkerfi íslenska landgrunnsins og kóralrif eru innan tæplega 33 þúsund ferkílómetra hafsvæðis sem Hafrannsóknastofnun leggur til að verði verndað. Verndunin er sögð geta haft einhver áhrif á botnvörpuveiðar. Innlent 11.6.2026 10:09
„Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Náttúruverndarsamtök furða sig á niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem gaf í gær grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Dóminum verði að öllum líkindum áfrýjað. Innlent 11.6.2026 10:00
Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun VR, LÍV og Fagfélögin efna til opins fundar fimmtudaginn 11. júní um verðbólguna, verðlag og laun. Fundurinn, sem ber yfirskriftina Eggið eða hænan, hefst klukkan 08:30 og verður í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 11.6.2026 08:02
Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar í aðsendri grein á vef Vísis í dag. 55 skrifa undir greinina og mótmæla lagasetningunni og krefjast þess að framkvæmdin verði stöðvuð. Þau segja „krappa hægri beygju“ í stefnu flokksins ekki hafa verið rædda á vettvangi hans og hún sé, að þeirra mati, í andstöðu við meginstefnu hans og grundvallarsjónarmið. Innlent 11.6.2026 07:55
Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Í dag, fimmtudaginn 11. júní, á milli klukkan 06:00 og 09:00 er stefnt á að færa umferð um Breiðholtsbraut af norðurakbraut yfir á suðurakbraut milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið. Innlent 11.6.2026 07:26
Mættu með stungusár á lögreglustöðina Tveir menn komu inn á lögreglustöðina við Hverfisgötu í gærkvöldi eða nótt, annar með blæðandi áverka í andliti. Sögðust mennirnir hafa verið stungnir skammt frá, af aðila sem þeir gátu nafngreint. Innlent 11.6.2026 06:35
Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Laxveiðitímabilið er að hefjast þessa dagana í ám landsins, þar á meðal í Vatnsdalsá í Húnaþingi. Hinn heimsfrægi tónlistarmaður Eric Clapton er einn þriggja leigutaka Vatnsdalsár. Innlent 11.6.2026 06:06
Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Þjónusta þjarka og falskra aðganga til að afvegaleiða umræðuna og auka upplýsingaóreiðu gengur kaupum og sölu á netinu. Greiningardeild ríkislögreglustjóra telur líklegt að erlendir aðilar muni reyna að hafa áhrif fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi ESB. Innlent 10.6.2026 23:13
Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, opnaði sig um hatursorðræðu og áhyggjur sínar af lýðræðislegri umræðu. Svæsin ummæli um hana og aðra þingmenn vekja upp spurningar. Innlent 10.6.2026 22:55
Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, hefur þegið boð Hildar Björnsdóttur um að taka við sem stjórnarformaður Orkuveitunnar. Innlent 10.6.2026 21:36
„Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir að aðild að Evrópusambandinu myndi bæta kjör almennings verulega með lægra matvælaverði og lægri vöxtum. Atkvæðagreiðslan í ágúst snúist ekki um aðild heldur hvort hefja eigi aðildarviðræður. Innlent 10.6.2026 21:22
NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Bandaríska geimferðastofnunin NASA mun standa í stórræðum hér á landi í ágúst þegar sólmyrkvinn stendur sem hæst. Flugvélar og loftbelgir koma við sögu. Innlent 10.6.2026 21:20