Viðskipti

Stærstu af­rekin að koma öllum út úr húsi á tíma

Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, reynir að hlaupa fyrir vinnu tvisvar til þrisvar í viku. Stærra afrek á morgnana felist þó í að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma. Enda aðal-vekjaraklukkan á heimilinu aðeins tveggja ára.

Atvinnulíf

Sam­runi Paramount og Warner Bros sam­þykktur

Kaup Paramount á Warner Bros hafa verið samþykkt af dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna en salan hefur verið umdeild, meðal annars vegna tengsla forstjóra Paramount og Donalds Trump forseta. Þrátt fyrir samþykkið eru kaupin ekki frágengin og enn er mögulegt að ríki höfði mál til að stöðva söluna.

Viðskipti erlent

Enn fjölgar aflýsingum

Sex flugferðum hefur verið aflýst hjá Icelandair í dag vegna manneklu. Greint hafði verið frá þremur þeirra en nú hafa þrjú bæst við. Kjaradeilan harðnar enn.

Viðskipti innlent

Sögu­legri skráningu SpaceX lokið

SpaceX, geimferða- og tæknifyrirtæki Elons Musk, hefur verið skráð á markað vestanhafs eftir 75 milljarða dala hlutafjárútboð, sem var það stærsta í sögunni. Útboðið og skráning SpaceX gæti gert Musk, sem er fyrir auðugasti maður jarðarinnar og vel það, að fyrsta billjónamæringi heims (í dölum talið).

Viðskipti erlent

Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn

Hafrannsóknastofnun leggur aftur til hækkun á loðnuráðgjöf í nýrri úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Lagt er til aflamark fyrir á annan tug stofna á grundvelli langtímamarkmiða íslenskra stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu. Ráðgjöf ýsu, ufsa og þorsks lækkar en veruleg hækkun er á loðnuráðgjöf.

Viðskipti innlent

Al­vöru þægindi eftir á­tján holur

„Golfhringur getur tekið fjórar til fimm klukkustundir og eftir hann er gott að setjast inn í bíl sem býður upp á alvöru þægindi,“ segir Hlynur Sigurðsson, framleiðandi og forfallinn golfari en hann lætur fara vel um sig í Hongqi EHS7 rafmangsbílnum frá BL í þáttunum Golfarinn á Sýn sem hann stýrir ásamt Ingu Lind.

Samstarf

Vél­menni ráðið til starfa og þú rekinn

Lengi hefur það verið nokkuð vinsælt efni í fjölmiðlum að birta fréttir um ráðningar á vinnustöðum. Í atvinnulífinu getur það jafnvel verið ákveðin staðfesting á mikilvægi þínu að fjölmiðlar birti um ráðninguna þína frétt.

Atvinnulíf

Þurfi að taka leiðin­legar á­kvarðanir

Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, telur að vilji íslensk stjórnvöld ná verðbólgunni niður þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir og til að mynda hækka skatta. Stýrivextir nægi ekki einir og sér til að ná niður verðbólgu.

Viðskipti innlent

Hefja rann­sókn á Ryanair

Samkeppnis- og markaðseftirlit Bretlands hefur hafið rannsókn á breska lággjaldaflugfélaginu Ryanair vegna gjalda sem farþegar þurfa að greiða svo foreldrar og börnin þeirra geti setið saman í flugferð.

Viðskipti erlent

Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023

Seðlabanki Evrópu (ECB) hefur nú hækkað stýrivexti í fyrsta sinn í nærri þrjú ár í von um að sporna gegn verðbólgu. Bankinn er sá fyrsti af mörgum stærstu seðlabönkum heims til að bregðast við hinu svokallaða orkuáfalli en eldsneytisverð hefur rokið upp undanfarna mánuði vegna stríðsins í Íran. Hagfræðingar hafa undanfarið deilt um hvort ákvörðunin sé réttlætanleg.

Viðskipti erlent

Festa og Gildi vilja sam­einast

Lífeyrissjóðirnir Festa og Gildi hyggjast hefja viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Gangi sameiningin eftir yrði nýr sjóður sá næststærsti á landinu með um 1.600 milljarða króna eignir miðað við stöðu sjóðanna í lok síðasta árs.

Viðskipti innlent

Halli ríkis­sjóðs eykst um tugi milljarða milli ára

Samkvæmt bráðabirgðamati er afkoma hins opinbera á fyrsta ársfjórðungi 2026 áætluð neikvæð um 23,7 milljarða króna, sem jafngildir 1,8 prósentum af vergri landsframleiðslu tímabilsins. Til samanburðar er áætlað að afkoma hins opinbera hafi verið nálægt jafnvægi á fyrsta ársfjórðungi 2025, þótt heildarafkoma þess árs sé metin neikvæð um 120,1 milljarð króna.

Viðskipti innlent

Spá ör­lítilli hjöðnun verð­bólgu

Íslandsbanki spáir því að verðbólga hjaðni lítillega í júní, en muni samt mælast yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágúst. Til lengri tíma litið er ekki útlit fyrir að verðbólga mælist við markmið á næstu árum.

Neytendur

Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis

Lögmannsstofur í Bandaríkjunum athuga nú hvort grundvöllur sé fyrir því að höfða mál gegn Oculis fyrir hönd hluthafa vegna hugsanlegra verðbréfasvika eða annarra ólöglegra viðskiptahátta. Slíkar rannsóknir eru vissulega algengar en ein lögmannastofa bendir á að stjórnendur hafi mögulega farið geyst með yfirlýsingar um lyfið OCS-01 sem reyndist svo ekki ná settum árangri í lyfjarannsókn.

Viðskipti innlent

Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hag­vexti og meiri verð­bólgu

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem hefur lokið árlegri úttekt sinni á íslensku efnahagslífi, telur stjórnvöld hafa með viðeigandi hætti hert taumhald í hagstjórn til að bregðast við innlendum eftirspurnarþrýstingi. Þrátt fyrir það hafi launahækkanir verið töluverðar, verðbólga haldist mikil og verðbólguvæntingar háar. Jafnframt hafi aukin alþjóðleg óvissa vegna átaka í Mið-Austurlöndum aukið hættu á að hagvöxtur verði minni en ella og að verðbólga verði meiri. 

Viðskipti innlent

Grát­legt hversu miklum peningum fólk tapar í fjár­svikum

Brynja M. Ólafsdóttir, sérfræðingur í regluvörslu Landsbankans, segir mikilvægt að fólk andi þrisvar og lesi vel skilaboð sem komi þegar fólk notar rafræn skilríki. Fjársvik hafa margfaldast síðustu ár og hún segir stöðuna sérstaklega slæma síðustu vikur. Brynja var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Viðskipti innlent

Nýjar í­búðir í Firði: Lúxus að búa í mið­bæ Hafnar­fjarðar

Mörg okkar dreymir um að geta gengið út úr húsi á morgnana, gripið nýbakað brauð í bakaríinu, sest á kaffihús eða rölt niður að höfninni án þess að þurfa að setjast upp í bíl. Nú gefst tækifæri til að láta þann draum rætast í nýjum íbúðum sem eru komnar í sölu í miðbæ Hafnarfjarðar að Strandgötu 26. Opið hús í dag, fimmtuag 11. júní og á laugardaginn 13. júní.

Samstarf

Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöru­verði

Framkvæmdastjóri Bónuss segist ekki geta fækkað starfsfólki þrátt fyrir tilkomu sjálfsafgreiðslukassa og þar af leiðandi lækki ekki vöruverð vegna þess. Nú þegar sé álagning á vörurnar svo lág að ef vöruverð yrði lækkað um þrjú prósent væri félagið nærri gjaldþroti.

Viðskipti innlent