Viðskipti
1 2 3 4 5 6 … 334 ›
Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Höskuldur Elefsen hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra afþreyingar- og ævintýrasviðs Icelandia. Höskuldur hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra dive.is síðastliðin tíu ár og gekk til liðs við Icelandia þegar fyrirtækin sameinuðust árið 2021. Viðskipti innlent 13.6.2026 13:45
Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, reynir að hlaupa fyrir vinnu tvisvar til þrisvar í viku. Stærra afrek á morgnana felist þó í að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma. Enda aðal-vekjaraklukkan á heimilinu aðeins tveggja ára. Atvinnulíf 13.6.2026 10:00
Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Kaup Paramount á Warner Bros hafa verið samþykkt af dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna en salan hefur verið umdeild, meðal annars vegna tengsla forstjóra Paramount og Donalds Trump forseta. Þrátt fyrir samþykkið eru kaupin ekki frágengin og enn er mögulegt að ríki höfði mál til að stöðva söluna. Viðskipti erlent 13.6.2026 08:55
Heimsins fyrsti billjónamæringur Auðkýfingurinn Elon Musk varð í dag heimsins fyrsti billjónamæringur eftir að hlutabréf í fyrirtæki hans SpaceX ruku upp við stærstu útgáfu hlutabréfa í sögunni. Viðskipti erlent 12.6.2026 23:12
Enn fjölgar aflýsingum Sex flugferðum hefur verið aflýst hjá Icelandair í dag vegna manneklu. Greint hafði verið frá þremur þeirra en nú hafa þrjú bæst við. Kjaradeilan harðnar enn. Viðskipti innlent 12.6.2026 17:44
Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Ferðaþjónusturisarnir Arctic Adventures hf. og Kynnisferða hf. (Icelandia) hafa ákveðið að slíta viðræðum um mögulegan samruna félaganna. Viðskipti innlent 12.6.2026 15:32
Sögulegri skráningu SpaceX lokið SpaceX, geimferða- og tæknifyrirtæki Elons Musk, hefur verið skráð á markað vestanhafs eftir 75 milljarða dala hlutafjárútboð, sem var það stærsta í sögunni. Útboðið og skráning SpaceX gæti gert Musk, sem er fyrir auðugasti maður jarðarinnar og vel það, að fyrsta billjónamæringi heims (í dölum talið). Viðskipti erlent 12.6.2026 15:31
Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Icelandair hefur aflýst þremur flugferðum í dag þar sem ekki tókst að manna vaktir. Útlit er fyrir að kjaradeila flugfélagsins við flugmenn hafi harðnað á ný. Viðskipti innlent 12.6.2026 15:17
Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Hafrannsóknastofnun leggur aftur til hækkun á loðnuráðgjöf í nýrri úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Lagt er til aflamark fyrir á annan tug stofna á grundvelli langtímamarkmiða íslenskra stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu. Ráðgjöf ýsu, ufsa og þorsks lækkar en veruleg hækkun er á loðnuráðgjöf. Viðskipti innlent 12.6.2026 10:37
Alvöru þægindi eftir átján holur „Golfhringur getur tekið fjórar til fimm klukkustundir og eftir hann er gott að setjast inn í bíl sem býður upp á alvöru þægindi,“ segir Hlynur Sigurðsson, framleiðandi og forfallinn golfari en hann lætur fara vel um sig í Hongqi EHS7 rafmangsbílnum frá BL í þáttunum Golfarinn á Sýn sem hann stýrir ásamt Ingu Lind. Samstarf 12.6.2026 08:50
Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Lengi hefur það verið nokkuð vinsælt efni í fjölmiðlum að birta fréttir um ráðningar á vinnustöðum. Í atvinnulífinu getur það jafnvel verið ákveðin staðfesting á mikilvægi þínu að fjölmiðlar birti um ráðninguna þína frétt. Atvinnulíf 12.6.2026 07:03
Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Efnahagsmál á Íslandi hafa aldrei uppfyllt öll þau skilyrði sem sett eru fyrir upptöku evru. Besti árangurinn var þó jafnaður í fyrra þegar Ísland uppfyllti þrjú af fimm skilyrðum en staðan hefur versnað síðan þá. Viðskipti innlent 12.6.2026 07:03
Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, telur að vilji íslensk stjórnvöld ná verðbólgunni niður þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir og til að mynda hækka skatta. Stýrivextir nægi ekki einir og sér til að ná niður verðbólgu. Viðskipti innlent 11.6.2026 23:41
Hefja rannsókn á Ryanair Samkeppnis- og markaðseftirlit Bretlands hefur hafið rannsókn á breska lággjaldaflugfélaginu Ryanair vegna gjalda sem farþegar þurfa að greiða svo foreldrar og börnin þeirra geti setið saman í flugferð. Viðskipti erlent 11.6.2026 22:38
Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Björgvin Jóhannesson hefur verið kjörinn nýr formaður FHG, Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu. Hann tekur við af Kristófer Oliverssyni sem hefur gegnt formennsku frá stofnun FHG árið 2018. Viðskipti innlent 11.6.2026 19:15
Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Seðlabanki Evrópu (ECB) hefur nú hækkað stýrivexti í fyrsta sinn í nærri þrjú ár í von um að sporna gegn verðbólgu. Bankinn er sá fyrsti af mörgum stærstu seðlabönkum heims til að bregðast við hinu svokallaða orkuáfalli en eldsneytisverð hefur rokið upp undanfarna mánuði vegna stríðsins í Íran. Hagfræðingar hafa undanfarið deilt um hvort ákvörðunin sé réttlætanleg. Viðskipti erlent 11.6.2026 18:52
Festa og Gildi vilja sameinast Lífeyrissjóðirnir Festa og Gildi hyggjast hefja viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Gangi sameiningin eftir yrði nýr sjóður sá næststærsti á landinu með um 1.600 milljarða króna eignir miðað við stöðu sjóðanna í lok síðasta árs. Viðskipti innlent 11.6.2026 16:16
Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Samkvæmt bráðabirgðamati er afkoma hins opinbera á fyrsta ársfjórðungi 2026 áætluð neikvæð um 23,7 milljarða króna, sem jafngildir 1,8 prósentum af vergri landsframleiðslu tímabilsins. Til samanburðar er áætlað að afkoma hins opinbera hafi verið nálægt jafnvægi á fyrsta ársfjórðungi 2025, þótt heildarafkoma þess árs sé metin neikvæð um 120,1 milljarð króna. Viðskipti innlent 11.6.2026 15:19
Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Íslandsbanki spáir því að verðbólga hjaðni lítillega í júní, en muni samt mælast yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágúst. Til lengri tíma litið er ekki útlit fyrir að verðbólga mælist við markmið á næstu árum. Neytendur 11.6.2026 14:13
Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Lögmannsstofur í Bandaríkjunum athuga nú hvort grundvöllur sé fyrir því að höfða mál gegn Oculis fyrir hönd hluthafa vegna hugsanlegra verðbréfasvika eða annarra ólöglegra viðskiptahátta. Slíkar rannsóknir eru vissulega algengar en ein lögmannastofa bendir á að stjórnendur hafi mögulega farið geyst með yfirlýsingar um lyfið OCS-01 sem reyndist svo ekki ná settum árangri í lyfjarannsókn. Viðskipti innlent 11.6.2026 12:42
Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins, segir að umræðuskjal Samkeppniseftirlitsins um matvælaverð dragi fram mikilvægar upplýsingar en að samhengi skorti í framsetninguna. Viðskipti innlent 11.6.2026 12:01
Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Nói Síríus hefur lækkað verð á öllum súkkulaðivörum sínum um tíu prósent. Verðlækkunin tók gildi 1. júní og nær jafnt til innlendra og erlendra vörumerkja fyrirtækisins. Viðskipti innlent 11.6.2026 11:07
Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem hefur lokið árlegri úttekt sinni á íslensku efnahagslífi, telur stjórnvöld hafa með viðeigandi hætti hert taumhald í hagstjórn til að bregðast við innlendum eftirspurnarþrýstingi. Þrátt fyrir það hafi launahækkanir verið töluverðar, verðbólga haldist mikil og verðbólguvæntingar háar. Jafnframt hafi aukin alþjóðleg óvissa vegna átaka í Mið-Austurlöndum aukið hættu á að hagvöxtur verði minni en ella og að verðbólga verði meiri. Viðskipti innlent 11.6.2026 11:00
Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Árangur Wise við innleiðingu skýjalausna hefur vakið eftirtekt erlendis en fyrirtækið var nýverið valið samstarfsaðili ársins 2026 hjá Companial (e. Companial Partner of the Year). Samstarf 11.6.2026 10:06
Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Brynja M. Ólafsdóttir, sérfræðingur í regluvörslu Landsbankans, segir mikilvægt að fólk andi þrisvar og lesi vel skilaboð sem komi þegar fólk notar rafræn skilríki. Fjársvik hafa margfaldast síðustu ár og hún segir stöðuna sérstaklega slæma síðustu vikur. Brynja var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Viðskipti innlent 11.6.2026 08:57
Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Mörg okkar dreymir um að geta gengið út úr húsi á morgnana, gripið nýbakað brauð í bakaríinu, sest á kaffihús eða rölt niður að höfninni án þess að þurfa að setjast upp í bíl. Nú gefst tækifæri til að láta þann draum rætast í nýjum íbúðum sem eru komnar í sölu í miðbæ Hafnarfjarðar að Strandgötu 26. Opið hús í dag, fimmtuag 11. júní og á laugardaginn 13. júní. Samstarf 11.6.2026 08:44
Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Breska samkeppniseftirlitið (CMA) hefur hafið rannsókn á gjaldtöku Ryanair. Málið varðar reglu flugfélagsins sem skyldar foreldra til að bóka sæti við hlið barns eða barna sinna á aldrinum tveggja til ellefu ára og rukkar fyrir sætið. Viðskipti erlent 11.6.2026 07:40
Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan við heyrðum síðast í nýsköpunarfyrirtækinu Tymewear, sem nú hefur þróað nýja vöru sem er að vaxa hratt í heimi íþrótta: VitalPro, lausn sem mælir öndun þannig að fólk nái meiri árangri á æfingum. Atvinnulíf 11.6.2026 07:03
Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Framkvæmdastjóri Bónuss segist ekki geta fækkað starfsfólki þrátt fyrir tilkomu sjálfsafgreiðslukassa og þar af leiðandi lækki ekki vöruverð vegna þess. Nú þegar sé álagning á vörurnar svo lág að ef vöruverð yrði lækkað um þrjú prósent væri félagið nærri gjaldþroti. Viðskipti innlent 10.6.2026 22:30
Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Verslun Krónunnar í Lindum í Kópavogi verður opnuð aftur á morgun eftir umfangsmiklar framkvæmdir sem staðið hafa yfir frá því í apríl. Viðskipti innlent 10.6.2026 20:00