Björgvin: Við erum að fara í alvöruleik gegn alvöruliði
Björgvin Gústavsson markvörður íslenska handboltalandsliðsins telur að íslenska liðið eigi mikið inni þrátt fyrir sigurinn gegn Noregi á miðvikudag. Björgvin og félagar hans mæta Slóvenum kl. 17.10 í lokaleiknum í riðlakeppninni á Evrópumeistaramótinu í Serbíu. „Við erum að fara í alvöru leik gegn alvöru liði,“ sagði Björgvin í gær fyrir æfingu íslenska liðsins.