Lífið

Hvað veistu um… árið 2010?

Tíminn líður og nú eru víst liðin sextán ár frá árinu 2010 – árinu þegar WikiLeaks var reglulega í fréttum, Aulinn ég var frumsýndur og kosningar til stjórnlagaþings fóru fram.

Lífið

„Það má herma“

„Eftir því sem ég verð öruggari í eigin skinni þá tek ég fleiri sénsa og það er svo miklu skemmtilegra,“ segir rekstrarþróunarstjórinn Ásthildur Bára Jensdóttir sem er mikil tískupæja og alltaf vel til höfð. Ásthildur rekur sitt eigið fyrirtæki sem sérhæfir sig í markaðsráðgjöf og hefur alla tíð haft áhuga á klæðaburði.

Tíska og hönnun

Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úr­slit HM

Heimsmeistaramótið í fótbolta hefst á morgun, fimmtudaginn 11. júní, en meðal þeirra sem hafa sest niður, rætt sín á milli og loks spáð fyrir um hvernig úrslit mótsins fara eru stelpurnar í fataversluninni Kjólum og konfekti. Sex kjólar í fánalitum skarta sem stendur búðarglugga verslunarinnar og segist eigandi aldrei hafa séð eins marga karlmenn stoppa við búðargluggann til að virða kjólana fyrir sér.

Tíska og hönnun

Líf­seigustu mýturnar um of­fitu: „Það er ekki sjúk­dómur að fitna“

Er offita alvöru sjúkdómur? Er fólk í ofþyngd ekki bara latara en aðrir? Og er BMI besti mælikvarðinn til að ákvarða ákjósanlega þyngd? Þetta er brot af þeim mýtum sem er að finna í samfélagsumræðunni um sjúkdóminn offitu. Erla Gerður Sveinsdóttir, sérfræðilæknir í offitumeðferð, fór yfir lífseigar mýtur varðandi sjúkdóminn offitu í Íslandi í dag.

Lífið

Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar

Sumarið er tími ástarinnar þar sem fjölmörg pör nýta góða veðrið til að ganga í heilagt hjónaband. Stórstjörnur eru þar ekki undanskildar en fyrsta stóra stjörnubrúðkaupið fór fram síðastliðna helgi þegar söngkonan Dua Lipa og leikarinn Callum Turner fögnuðu ást sinni með vinum og vandamönnum á Sikiley.

Lífið

Guð­rún Ýr og Birnir í eina sæng

„Ég er virkilega spennt að halda áfram að gefa út tónlist í þessum stíl,“ segir poppstjarnan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN. Hún frumsýnir hér tónlistarmyndband ásamt rapparanum Birni við splunkunýtt lag sem heitir Vilt fá.

Tónlist

Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans

Danski barnabókahöfundurinn Ole Lund Kirkegaard lést langt fyrir aldur fram árið 1979 eftir að hafa gefið út níu barnabækur á tólf ára ferli. Nú tæpri hálfri öld síðar er von á nýrri bók eftir höfundinn: Kalli og Kapteinn Skipper. Óklárað handrit bókarinnar fannst fyrir 35 árum síðan og ákvað Nana Bang Kirkegaard, dóttir höfundarins, svo að ljúka við það.

Menning

Á­hugi leshringja svo mikill að Salka stækkar

„Fyrst og fremst held ég að fólk sem er í leshring lesi oftast meira en það hefði annars gert en það er allur gangur á því hvernig hóparnir gera þetta,“ segir Anna Lea Friðriksdóttir, annar eigandi útgáfunnar og bókabúðarinnar Sölku, um kosti þess að vera í leshring. Það geti verið virkilega skemmtilegt.

Lífið samstarf

Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design

Margir eiga sín uppáhalds kósýföt sem henta vel heima við en vilja jafnframt finna flíkur sem eru nógu fágaðar fyrir vinnuna, ferðalagið og sparilegri tilefni. Lín Design svarar þeirri eftirspurn en skandinavíska merkið Ninepine fæst nú í verslun fyrirtækisins í Smáratorgi.

Lífið samstarf

„Ég var löngu til­búin að giftast honum“

„Maður verður alveg smá sorgmæddur þegar þetta er búið. Þetta var svo skemmtilegt að mann langar að upplifa þetta oftar,“ segir hin nýgifta Gerður Huld Arinbjarnardóttir, oftast kennd við kynlífstækjaverslunina Blush.

Lífið

Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukku­tíma á dag

„Ég hélt bara að árið 2026 væri fólk búið að sjá meira og minna allt og að þetta myndi kannski ekki alveg kveikja á þessum viðbrögðum,“ segir listakonan og dansarinn Lísandra Týra Jónsdóttir sem setti upp gjörninginn „The Urinal“ í sýningarrými á Ingólfsstræti síðastliðna helgi. Gjörningurinn var óhefðbundinn eins og gengur og gerist í slíku listformi en hann snerist um að pissa í klósett í sjö klukkustundir á dag í sex daga í röð.

Menning

Rassaumhirða karla í sókn

Rassinn og umhirða hans hafa lengi verið feimnismál fyrir karlmenn en nú virðist hafa orðið breyting þar á. Sístækkandi hluti snyrtivöruiðnaðarins snýr að vörum sem tengjast endaþarmsumhirðu karla og bandarískar stórstjörnur hafa hoppað á vagninn. Markaðssetning slíkra vara keyrir jafnan á húmor og miðar að því að undirstrika karlmennsku notandans.

Lífið

Leggja á­herslu á liti, gleði og glimmer

Förðunarfræðingarnir Halla Þórarinsdóttir og Skjöldur Eyfjörð ætla sér stóra hluti á íslenskum snyrtivörumarkaði og fara brátt af stað með eigið merki, Just Makeup. Halla og Skjöldur voru viðmælendur Sindra Sindrasonar í nýjasta þætti af Íslandi í dag.

Lífið

Þor­gerður Katrín og Sól­veig Anna í þrumustuði í Þulu

Myndlistarkonan Kristín Morthens opnaði nýverið sýninguna Að teygja tvílýsið í Þulu gallerý í Marshall-húsinu. Sýningin fjallar um það að staldra við í óvissu og stendur yfir til 28. júní. Fjöldi góðra gesta mætti á sýningaropnunina, þar með talið verkalýðsleiðtogi og utanríkisráðherra.

Menning

Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía

Breska ofurfyrirsætan Cara Delevingne hefur marga fjöruna sopið á sinni lífsleið. Cara er fædd árið 1992 og tilheyrir breskri yfirstéttarfjölskyldu þar sem allt leit vel út á yfirborðinu en innan veggja heimilisins voru mikil átök. Cara opnaði sig upp á gátt í hlaðvarpinu „Call her daddy“ á dögunum og leyndi engu.

Lífið

Madonna með heitustu dansmynd ársins

Poppstjarnan Madonna var að senda frá sér framúrstefnulega og sjóðheita tónlistarmynd þar sem margar áhugaverðar dægurmenningarstjörnur koma fyrir. Madonna, sem er 67 ára, slær ekki slöku við í tónlistarbransanum, er að gefa út breiðskífuna „Confessions II“ í júlí og er sannkölluð danssenu-drottning. 

Tónlist

Hætt saman en enn­þá vinir

Stórstjarnan Ariana Grande og leikarinn Ethan Slater eru hætt saman eftir þriggja ára samband. Þau felldu hugi saman við tökur á söngleikjamyndinni Wicked en heimildir vestanhafs herma að tvíeykið sé enn góðir vinir. 

Lífið

Þre­föld út­gáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“

Drake hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður heims síðustu fimmtán ár. Lítið hefur þó farið fyrir honum síðan harðvítugar rappdeilur hans við Kendrick Lamar náðu hápunkti fyrir tveimur árum síðan. Þangað til um miðjan síðasta mánuð þegar Drake gaf út þrjár plötur sama daginn. Plöturnar ruku upp á topp vinsældarlista en viðbrögð gagnrýnenda hafa verið misjöfn. Vísir heyrði hljóðið í þremur dyggum rapphlustendum til að ræða plöturnar og stöðu Drake.

Tónlist

Varð ást­fanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi

„Eiginkona mín hefur sannarlega bjargað mér síðan ég kynntist henni en það var á sama tíma og móðir mín var að deyja úr krabbameini,“ segir listamaðurinn Anders Vanga sem rekur Reykjavík Glass. Þessi einlægi og skapandi maður er viðmælandi í nýjasta þætti af Litlu hlutirnir með Kára Sverris þar sem hann ræður um erfiðan missi, að veikjast sjálfur af krabbameini, flutninga til Íslands, sköpunargleðina, fjölskylduna og margt fleira.

Lífið

Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum

Breski tónlistarmaðurinn og lagahöfundurinn Talay Riley, sem samdi lög fyrir tónlistarmenn á borð við Britney Spears, Usher og Chris Brown, er látinn, 35 ára að aldri, eftir að hafa verið stunginn margsinnis með hnífi í Silvertown í austurhluta Lundúna föstudaginn 5. júní.

Tónlist

Blendnar til­finningar að fara á vinnu­markað á ný

Guðmundur Felix Grétarsson, sem missti báða handleggi árið 1998 í vinnuslysi og fékk ágrædda handleggi árið 2021, reynir nú að koma sér aftur á vinnumarkað og segir það ekki hafa verið mögulegt án aðgerðarinnar.  Guðmundur ræddi stöðuna á handleggjunum og lífinu frá Strassborg, þar sem hann er búsettur, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Lífið

Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða

Tuskegee-rannsóknin er eitt alræmdasta samsæri yfirvalda gegn eigin borgurum á tuttugustu öldinni. Bandaríska ríkið bauð fátækum, svörtum bændum ókeypis „lækningu“ við „slæmu blóði“ en meinuðu þeim vísvitandi um lífsbjargandi lyf við sárasótt til að fylgjast með því hvernig sjúkdómurinn legði taugakerfið, beinin og hjartað í rúst.

Lífið

„Ég passaði mig sér­stak­lega á því að tala ekki um Evrópu­sam­bandið“

„Málið er að ég var að fara að spila lagið Þingmannagæla. Í því er kórusinn: „þingmaður og svarið er, já“ og „þingmaður og svarið er nei“. Ég hafði orð á því að ég vildi bara það besta fyrir æsku landsins eins og börnin mín og ef krónan væri ekki að virka væri ég alveg sáttur við evru,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens.

Lífið

Adam Páls fann ástina í örmum Moniku

Fótboltakappinn Adam Pálsson er kominn á fast með Moniku Birtu Baldvinsdóttir. Parið hefur verið að slá sér upp í dágóðan tíma en opinberaði ástina á Instagram um helgina.

Lífið