Lífið

„Það er á­stæða fyrir bólgunni“

Í kjölfar slyss hóf töffarinn Heather Mills, fyrrverandi eiginkona Bítilsins Paul McCartney, framleiðslu á No Bloat, frostþurrkuðu heilsufæði. No Bloat er vegan fæði sem hentar vel þeim sem kljást við meltingarvandamál. Vala Matt ræddi við Heather í nýjasta þætti Íslands í dag. 

Lífið

Óboðni sturtugesturinn sex­tán sentí­metra kóngu­ló

„Ég var komin með smá nóg af Íslandi og nýtt upphaf og ný ævintýri voru farin að kalla á mig. Ég hef alltaf elskað að ferðast og hugsaði: Af hverju ekki að flytja til lands sem er lengst í burtu og algjör andstæða við Ísland?“ segir hin tuttugu ára gamla Hrafney Reynaga sem er nú búsett í Sydney en hún flutti hinum megin á hnöttinn fyrir átta mánuðum síðan. Blaðamaður ræddi við hana um lífið úti.

Lífið

Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori

Hafnfirðingurinn Björk Jakobsdóttir er kona margra hatta. Hún er leikkona, veislustjóri, amma, leikhússtjóri, uppistandari, leikskáld og hestahvíslari. Spurning frá Árna heitnum Tryggvasyni reyndist örlagarík. Hún segist vel geta séð fyrir sér að söðla um og gerast bóndi. Og það sem meira er, maður trúir henni alveg til að láta verða af þessu.

Lífið

Frétta­tía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit

Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem leið? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Í Fréttatíu vikunnar beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist hér heima og erlendis.

Lífið

Brenni­vín hlaut gull­verð­laun

Jólabrennivín frá Kveldúlfs Distillery hlaut gullverðlaun á alþjóðlegu vínkeppninni International Wine & Spirit Competition (IWSC). Verðlaunin staðfesti sterka stöðu brennivíns á alþjóðavettvangi og sýni að íslenskt handverk eigi fullt erindi meðal fremstu framleiðenda heims.

Matur

Stærstu rauðu flöggin á stefnu­móta­forritum

Metnaðarlaus prófíll, þriggja ára gamlar myndir og það að hefja spjallið á „hæ“ eru meðal stærstu mistaka sem fólk gerir á stefnumótaforritinu Smitten að sögn Davíðs Arnar Símonarsonar, framkvæmdastjóra og eins stofnanda Smitten.

Lífið

David Hockney er látinn

Myndlistarmaðurinn David Hockney, risi breskrar samtímalistar og einn áhrifamesti listamaður bæði 20. og 21. aldarinnar, er látinn, 88 ára að aldri. Meðal þekktustu verka hans eru poppmálverkin The Splash og Pool with Two Figures af sólsleiktum sundlaugum Kaliforníu.

Menning

Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“?

Það er fátt sem lætur hárið líta jafn heilbrigt, vel nært og vel hirt út og fallegur glans. Undanfarin ár höfum við séð mikla þróun í hárumhirðu þar sem áherslan hefur færst frá því að hárið sé einfaldlega mjúkt eða sterkt yfir í það að það endurkasti ljósi og hafi spegilslíkan gljáa. Fríða Rut Heimisdóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi Regalo fjallar hér um hárvörur sem auka glans.

Lífið samstarf

Ósk um öf­ga­fulla ást og bæling í bak­her­bergjunum

Tvær óvæntustu stórmyndir ársins eru hrollvekjur eftir kornunga leikstjóra sem byrjuðu ferilinn á Youtube. Önnur fjallar um ósk sem virðist sakleysisleg í fyrstu en hefur ófyrirséðar og hrollvekjandi afleiðingar. Hin segir frá manni sem uppgötvar dularfull bakherbergi í kjallara húsgagnaverslunar sem leiða hann inn í martraðarkennt völundarhús. Báðar takast þær á við áleitin málefni á frumlegan máta með nútímalegum aðferðum og dassi af gálgahúmor.

Gagnrýni

Marteinn Helgi Sigurðs­son er látinn

Marteinn Helgi Sigurðsson, doktor í norrænum miðaldafræðum við Cambridge-háskóla, er fallinn frá, fimmtíu og fimm ára að aldri. Heimildarmyndin Veðurskeytin er byggð á reynslu Marteins en hann greindist skyndilega með geðhvörf fyrir nokkrum árum og fjallar myndin um vegferð hans í kjölfar greiningarinnar. Marteinn greindist með krabbamein á lokastigi fyrir um tveimur árum og voru honum einungis ætlaðir nokkrir dagar ólifaðir.

Lífið

Hefur þegar fengið starfstilboð

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir að það að ganga í gegnum erfiðleika hafi mótað hana mest. Áslaug gengur stolt frá störfum sínum á þingi en segist munu sakna þess að takast á um framtíð landsins. Starfstilboð eru þegar farin að berast Áslaugu sem er nýkomin heim úr meistaranámi í Bandaríkjunum.

Lífið

Harbour rýfur þögnina

Leikarinn David Harbour hefur loksins tjáð sig um plötuna West End Girl eftir Lily Allen, fyrrverandi eiginkonu hans, en þar söng hún um skilnað þeirra og framhjáhald hans. Harbour segist bera virðingu fyrir því að Allen hafi unnið úr eigin reynslu á plötunni en upplifun hans af sambandi þeirra hafi verið önnur.

Bíó og sjónvarp

Swae Lee heldur tón­leika á Ís­landi

Rapparinn og tónlistarmaðurinn Swae Lee, sem er þekktastur fyrir lögin „Unforgettable“ með French Montana og „Sunflower“ með Post Malone og sem annar helmingur rapptvíeykisins Rae Sremmurd, heldur tónleika í Austurbæjarbíói þann 15. ágúst næstkomandi.

Tónlist

Hvað veistu um… árið 2010?

Tíminn líður og nú eru víst liðin sextán ár frá árinu 2010 – árinu þegar WikiLeaks var reglulega í fréttum, Aulinn ég var frumsýndur og kosningar til stjórnlagaþings fóru fram.

Lífið

„Það má herma“

„Eftir því sem ég verð öruggari í eigin skinni þá tek ég fleiri sénsa og það er svo miklu skemmtilegra,“ segir rekstrarþróunarstjórinn Ásthildur Bára Jensdóttir sem er mikil tískupæja og alltaf vel til höfð. Ásthildur rekur sitt eigið fyrirtæki sem sérhæfir sig í markaðsráðgjöf og hefur alla tíð haft áhuga á klæðaburði.

Tíska og hönnun

Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úr­slit HM

Heimsmeistaramótið í fótbolta hefst á morgun, fimmtudaginn 11. júní, en meðal þeirra sem hafa sest niður, rætt sín á milli og loks spáð fyrir um hvernig úrslit mótsins fara eru stelpurnar í fataversluninni Kjólum og konfekti. Sex kjólar í fánalitum skarta sem stendur búðarglugga verslunarinnar og segist eigandi aldrei hafa séð eins marga karlmenn stoppa við búðargluggann til að virða kjólana fyrir sér.

Tíska og hönnun

Líf­seigustu mýturnar um of­fitu: „Það er ekki sjúk­dómur að fitna“

Er offita alvöru sjúkdómur? Er fólk í ofþyngd ekki bara latara en aðrir? Og er BMI besti mælikvarðinn til að ákvarða ákjósanlega þyngd? Þetta er brot af þeim mýtum sem er að finna í samfélagsumræðunni um sjúkdóminn offitu. Erla Gerður Sveinsdóttir, sérfræðilæknir í offitumeðferð, fór yfir lífseigar mýtur varðandi sjúkdóminn offitu í Íslandi í dag.

Lífið

Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar

Sumarið er tími ástarinnar þar sem fjölmörg pör nýta góða veðrið til að ganga í heilagt hjónaband. Stórstjörnur eru þar ekki undanskildar en fyrsta stóra stjörnubrúðkaupið fór fram síðastliðna helgi þegar söngkonan Dua Lipa og leikarinn Callum Turner fögnuðu ást sinni með vinum og vandamönnum á Sikiley.

Lífið

Guð­rún Ýr og Birnir í eina sæng

„Ég er virkilega spennt að halda áfram að gefa út tónlist í þessum stíl,“ segir poppstjarnan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN. Hún frumsýnir hér tónlistarmyndband ásamt rapparanum Birni við splunkunýtt lag sem heitir Vilt fá.

Tónlist

Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans

Danski barnabókahöfundurinn Ole Lund Kirkegaard lést langt fyrir aldur fram árið 1979 eftir að hafa gefið út níu barnabækur á tólf ára ferli. Nú tæpri hálfri öld síðar er von á nýrri bók eftir höfundinn: Kalli og Kapteinn Skipper. Óklárað handrit bókarinnar fannst fyrir 35 árum síðan og ákvað Nana Bang Kirkegaard, dóttir höfundarins, svo að ljúka við það.

Menning

Á­hugi leshringja svo mikill að Salka stækkar

„Fyrst og fremst held ég að fólk sem er í leshring lesi oftast meira en það hefði annars gert en það er allur gangur á því hvernig hóparnir gera þetta,“ segir Anna Lea Friðriksdóttir, annar eigandi útgáfunnar og bókabúðarinnar Sölku, um kosti þess að vera í leshring. Það geti verið virkilega skemmtilegt.

Lífið samstarf