Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Verzlunarskóli Íslands vann sinn þriðja hljóðnema í kvöld eftir að hafa borið afgerandi sigur úr býtum gegn Menntaskólanum í Reykjavík í æsispennandi úrslitaviðureign Gettu betur, með 36 stigum gegn 25. Þetta er fyrsta úrslitakeppnin þar sem fleiri stúlkur kepptu en strákar. Innlent 10.4.2026 21:54
Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Landskjörstjórn telur að orðalag sé gildishlaðið í frumvarpi utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort „halda eigi áfram“ aðildarviðræðum við Evrópusambandið enda sé enn deilt um það hvort umsókn Íslands sé virk eða ekki. Kjörstjórnin telur að spurningin geti vakið tortryggni um að framsetning hennar kunni að hafa áhrif á afstöðu kjósenda. Innlent 10.4.2026 20:53
Góðan daginn býður góðan dag Ellefu flokkar skiluðu nauðsynlegum gögnum fyrir komandi borgarstjórnarkosningar áður en framboðsfrestur rann út klukkan tólf. Óvænt framboð hreyfingarinnar Góðan daginn barst á elleftu stundu en þau segjast vilja bæta rekstur borgarinnar með nýjum áherslum. Innlent 10.4.2026 20:32
Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, bæjarfulltrúi í Grindavík, segir Grindavíkurbæ og Grindvíkingum betur borgið án aðkomu ríkisstjórnarinnar. Ráðherrarnir Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland hafi lofað að snúa ekki baki við þeim en ekki efnt þau loforð. Innlent 10.4.2026 16:55
Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Gabríel Douane Boama er einn þeirra fjögurra sem handteknir voru vegna alvarlegrar líkamsárásar í miðborginni aðfaranótt 5. mars. Gæsluvarðhald yfir honum vegna árásarinnar rann út í gær og þá var hann úrskurðaður í síbrotagæslu til 6. maí. Innlent 10.4.2026 16:37
Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, segir stjórnvöld hafa misst tökin á efnahagsástandinu og hún beini spjótum að öllum öðrum en sér sjálfum. Ásdís er ómyrk í máli. Innlent 10.4.2026 16:37
Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Innlent
Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Grindavíkurnefnd mælir ekki með því að barnafjölskyldur flytji aftur til Grindavíkur á meðan óvissa varir enn í bænum. Innlent 10.4.2026 14:42
Mikilvægt að tala saman, líka karlar Hið árlega hlaup til styrktar Píeta samtökunum fer fram í fjórum landshlutum á morgun og hafa staðirnir aldrei verið fleiri. Talsmaður hlaupsins segir hátt í þúsund manns hafa sýnt því áhuga enda um að ræða málefni sem snertir marga. Markmiðið í ár sé að vekja athygli á mikilvægi samræðu og hreyfingar fyrir andlega heilsu. Innlent 10.4.2026 14:22
Krefjast þess að framkvæmdir við Kaffistofuna verði stöðvaðar Fjörutíu og fjórir íbúar og fasteignaeigendur í hverfi 108 hafa lagt fram stjórnsýslukæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar Reykjavíkurborgar um að veita byggingarleyfi fyrir starfsemi kaffistofu Samhjálpar að Grensásvegi 46. Þau krefjast þess að framkvæmdir verði stöðvaðar og vilja að samþykki borgarinnar verði fellt úr gildi. Innlent 10.4.2026 13:36
Bein útsending: Kynna áform um endurreisn Grindavíkur Grindavíkurnefnd hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 14:00. Þar mun nefndin kynna tvær skýrslur sem snúa að endurreisn Grindavíkur. Beina útsendingu frá fundinum má sjá hér á Vísi. Innlent 10.4.2026 13:33
Guðmundarlundur á bólakafi Útivistarsvæðið Guðmundarlundur í Kópavogi minnir frekar á stöðuvatn en útivistarsvæði eftir storma og tilheyrandi leysingar. Framkvæmdarstjóri Skógræktarfélags Kópavogs segir vatnshæðina hafa náð tæplega metra þegar mest var. Allt horfi til betri vegar og skipulagðar fermingarveislur um helgina fari fram. Innlent 10.4.2026 13:14
Kona handtekin vegna dánartilkynningar í Morgunblaðinu Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið konu í þágu rannsóknar á umsáturseinelti í kjölfar birtingar á dánartilkynningu í Morgunblaðinu nú í morgun. Lögregla ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir konunni í dag. Innlent 10.4.2026 12:33
Sömdu um starfslok bæjarstjóra Akraness Haraldur Benediktsson hætti sem bæjarstjóri Akraness strax í dag samkvæmt samkomulagi sem hann gerði við bæjarstjórn. Staðgengill hans tekur við stöðunni tímabundið. Innlent 10.4.2026 12:19
Muni ekki fallast á tilmæli til barnafjölskyldna í Grindavík Grindavíkurnefnd mun í dag kynna skýrslur um endurreisn Grindavíkur og næstu skref. Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur furðar sig á því að tillögur Þórkötlu um endurkaup Grindvíkinga á heimilum sínum verði ekki kynnt samhliða skýrslu nefndarinnar. Innlent 10.4.2026 12:00
„Ný atvinnustefna Íslands markar tímamót“ Ríkisstjórnin hefur samþykkt nýja atvinnustefnu Íslands. Þessi fyrsta heildstæða atvinnustefna Íslands er 10 ára vaxtarplan sem lýsir því hvernig stjórnvöld vinna með atvinnulífi og samfélagi að verðmætasköpun í landinu. Atvinnustefnunni fylgir einnig aðgerðaáætlun sem nær til áranna 2026 – 2027 þar sem settar eru fram 35 aðgerðir til að stuðla að markvissri innleiðingu stefnunnar. Forsætisráðherra segir um tímamót að ræða. Innlent 10.4.2026 11:49
Valkyrjurnar boða aðgerðir til að takast á við verðbólguna Í hádegisfréttum fjöllum við um blaðamannafund ríkisstjórnarinnar sem fram fer nú á tólfta tímanum. Innlent 10.4.2026 11:30
Nýtt framboð í Reykjavík á elleftu stundu Undirskriftasöfnun fyrir Góðan daginn, nýtt framboð til borgarstjórnar Reykjavíkur hófst í gærkvöldi, hálfum sólarhring áður en framboðsfrestur rennur út. Hópurinn vill meðal annars endurskoða borgarlínu og Sundabraut. Innlent 10.4.2026 11:24
Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Lögmaður manns sem kærði tónlistarmanninn Stefán Jakobsson fyrir líkamsárás segir óásættanlegt að nýta vettvang samfélagsmiðla og fjölmiðla til að vega að persónu mannsins. Stefán var í vikunni sýknaður í málinu og er í framhaldinu hættur sem söngvari hljómsveitarinnar Dimmu. Innlent 10.4.2026 11:05
Fjölmiðlahugtakið sagt útþynnt og gagnslaust Ingvar Smári Birgisson, lögmaður og stjórnarmaður hjá RÚV, segir fjölmiðlahugtakið nú orðið svo útþynnt, bæði í fjölmiðlalögum og í framkvæmd fjölmiðlanefndar, að það sé í hans huga orðið nær algerlega merkingarlaust. Innlent 10.4.2026 11:00
Bein útsending: Kynna atvinnustefnu og aðgerðir gegn verðbólgu Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 11:30, þar sem ný atvinnustefna verður kynnt auk aðgerða gegn verðbólgu. Beina útsendingu frá fundinum má sjá hér á Vísi. Innlent 10.4.2026 10:58
„Að mínu mati lýsir þessi dómur ekki réttlæti“ Aníta Rut Harðardóttir lögreglumaður, sem var á dögunum dæmd fyrir ólögmætar uppflettingar í LÖKE, telur dóminn ekki réttlátan. „Hvaða réttlæti er í því að handrukkarar og fíkniefnasalar geti ógnað lífi og limum einstæðings í viðkvæmri stöðu með ungt barn á framfæri?“ spyr hún. Innlent 10.4.2026 10:36
Helmingur hefur áhyggjur af áróðursherferðum erlendra ríkja Tæpur helmingur landsmanna hefur miklar áhyggjur af áróðursherferðum erlendra ríkja hér á landi og hefur mikill meirihluti orðið var við þær, og sérstaklega á Facebook. Helmingur segist vel undirbúinn til þess að sjá í gegnum áróðursherferðir erlendra ríkja hér á landi og karlmenn eru líklegri en konur til að telja sig geta það. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Fjölmiðlanefndar og Netvís sem birtir lista yfir óvinsælustu hópa landsins. Innlent 10.4.2026 09:19
Kom fyrir hlerunarbúnaði en var sýknaður: „Úrskurður græjaður núna hviss bamm búmm“ Lögreglumaður sem var ákærður fyrir að hafa komið hlerunarbúnaði fyrir í bifreið án heimildar var sýknaður á þeim grundvelli að hann hafi mátt telja að heimild lægi fyrir. Ekki var talið skipta máli að lögreglumaðurinn sem bað hann um að koma búnaðinum fyrir hefði sent honum skilaboð um að „tracker úrskurður [verði] græjaður núna hviss bamm búmm.“ Innlent 10.4.2026 09:02
Bílar bíta grasið við bakka Vesturbæjarlaugar „Einu sinni notuðum við hesta sem átu gras. Nú eru bílarnir farnir að gera það,“ segir Vesturbæingurinn Örn Úlfar Sævarsson sem um árabil hefur háð einhvers konar eins manns varnarbaráttu fyrir grasbalanum við Vesturbæjarlaug sem miskunnarlítið er notaður sem bílastæði. Innlent 10.4.2026 08:45