Handbolti

Sebastian: Get skilið við félagið á betri stað

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sebastian Alexandersson, fyrrum þjálfari Selfoss.
Sebastian Alexandersson, fyrrum þjálfari Selfoss. Vísir/Anton
Sebastian Alexandersson hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni af því að honum var nýverið sagt upp störfum sem þjálfari hjá handknattleiksdeild Selfoss.

Sebastian var þjálfari kvennaliðs félagsins sem situr í næstneðsta sæti Olísdeildar kvenna. Liðið komst þó undanúrslit Coca-Cola bikars kvenna þar sem Selfyssingar máttu þola tap fyrir Stjörnunni.

Hann segist stoltur af sínum störfum en hann lætur formlega af störfum í dag eftir tæplega fjórtán ára starf.

„Það sem gleður mig þó mest er að ég get skilið við félagið á betri stað en það var á þegar ég kom til þess,“ segir í yfirlýsingu hans sem má lesa alla hér fyrir neðan.

„Í maí 2003 hóf ég störf hjá Handknattleiksdeild Selfoss og í dag 1. mars 2017 læt ég af störfum sem starfsmaður félagsins. Á þessum tíma hef ég kynnst frábæru fólki hvort sem það eru leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn, stuðningsmenn, styrktaraðilar, aðstandendur eða samstarfsaðilar sem vert væri að þakka sérstaklega en listinn er of langur.

Ég vill þakka Selfossi sérstaklega fyrir tækifærið sem þeir hafa gefið mér á þessum tíma sem ég hef starfað hjá þeim. Þökk sé þeim þá er ég í dag jafnvígur á karlaþjálfun, kvennaþjálfun, yngriflokkaþjálfun og sérþjálfun. Það eru fáheyrð forréttindi að hafa fengið svo mörg tækifæri innan sama félagsins. Einnig vill ég þakka samstarfsmanni mínum Zoran Ivic sérstaklega fyrir samstarfið í vetur. Það hefur verið ákaflega lærdómsríkt að kynnast öðrum áherslum og sjónarmiðum sem hafa bæði víkkað sjóndeildarhring minn og aukið þekkingu mína sem þjálfara.

Ég er stoltur af framlagi mínu til uppbyggingar karlaboltans á árunum 2003-2011. Ég er mjög stoltur af því að hafa tekið þátt í búa til akademíu sem virkar. Þá er ég sérstaklega stoltur af því að hafa lagt mitt að mörkunum við að búa til samkeppnishæft kvennalið á aðeins 5 árum eftir að félagið hafði ekki verið með kvennalið í tæp 20 ár. En það sem gleður mig þó mest er að ég get skilið við félagið á betri stað en það var á þegar ég kom til þess.

Að lokum vill ég óska leikmönnum félagsins alls hins besta í komandi leikjum. Ég óska stjórn félagsins alls hins besta við áframhaldandi uppbyggingu þessa flotta félags og ég óska samstarfsfólki mínu alls hins besta í því sem þeir eru að gera eða taka sér næst fyrir hendur.  

Virðingafyllst

Sebastian“


Tengdar fréttir

Sebastian látinn fara

Stjórn handknattleiksdeildar Selfoss sagt upp samningi við Sebastian Alexanderson og Zoran Ivic sem þjálfað hafa kvennalið Selfoss frá vordögum 2016. Uppsögn þeirra tekur þegar gildi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×