Sarpur hlýtur íslensku safnaverðlaunin 2014 Randver Kári Randversson skrifar 6. júlí 2014 16:06 Íslensku safnaverðlaunin voru veitt á Bessastöðum í dag.
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson afhenti Íslensku safnaverðlaunin 2014 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, sunnudaginn 6. júlí. Var það Rekstrarfélag Sarps sem hlaut viðurkenninguna fyrir ytri vef menningarsögulega gagnasafnsins Sarps (www.sarpur.is) og 1.000.000 kr. að auki. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íslandsdeild Alþjóðaráðs safna (ICOM). Þrjú söfn hlutu tilnefningu árið 2014 - Hafnarborg, menningar og listamiðstöð Hafnarfjarðar sem tilnefnd er fyrir metnaðarfulla sýningardagskrá og samfélagslega virkni, Þjóðminjasafn Íslands fyrir dagskrá í tilefni 150 ára afmælis safnsins og Rekstrarfélag Sarps fyrir ytri vef menningarsögulega gagnasafnsins Sarps. Í umsögn valnefndar segir: Rekstrarfélag Sarps er tilnefnt til Íslensku safnaverðlaunanna 2014 fyrir ytri vef menningarsögulega gagnasafnsins Sarps. Á árinu 2013 urðu þau tímamót í Íslensku safnastarfi að safnkostur þeirra safna sem eiga aðild að menningarsögulega gagnasafninu Sarpi varð aðgengilegur almenningi í gegnum veraldarvefinn. Þá var opnaður svo kallaður ytri vefur Sarps sem býður upp á leit í safnkosti 44 safna af ýmsum stærðum og gerðum. Ytri vefurinn er gátt inn í skráningarkerfi safnanna þar sem upplýsingar um safnkost þeirra er að finna. Fjársjóður sá, sem söfnin varðveita, er einstaklega fjölbreyttur; þar má finna margskonar brúkshluti, ljósmyndir, myndlistarverk af ýmsu tagi, lýsingu á þjóðháttum fyrr og nú ásamt upplýsingum um hús og margt fleira. Ytri vefur Sarps er bylting í aðgengi almennings að upplýsingum um menningararfinn og skapar tækifæri fyrir alla sem áhuga hafa á safnkosti íslenskra safna til að finna upplýsingar, skoða, bera saman og deila. Vefurinn nýtist nemendum á öllum skólastigum og eykur möguleika á rannsóknum á menningararfinum. Vefurinn gefur almenningi tækifæri til að bæta við þekkingarbrunninn í gegnum sérstakt athugasemdakerfi. Gagnasafnið er því lifandi og kvikt, tekur sífellt við nýjum upplýsingum, stækkar og batnar meðal annars með myndvæðingu þess. Ytri vefur Sarps er mikilvægur til þess að söfnin í landinu séu virkir þátttakendur í upplýsingasamfélaginu og opnar gátt milli almennings og safna.
Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Innlent „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ Innlent John Alford fannst látinn í fangelsinu Erlent Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Innlent Hellisheiði er lokuð Innlent Rúta út af og Þingvallavegi lokað Innlent Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Innlent Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Innlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Fleiri fréttir Þrír fluttir á slysadeild ofan af Hellisheiðinni eftir tvo árekstra Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Rúta út af og Þingvallavegi lokað Tvö snjóflóð skammt frá byggð í Siglufirði Galdrakarlinn í AUS Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Stakar styrkveitingar taldar með í upptökutölfræðinni Hellisheiði er lokuð „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ „Við erum ekki hrædd“ Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Ferðalangar í vandræðum víða um land vegna færðar Uppnám á flugvellinum og fyrsti kvenkyns keppandinn Handtekinn á sjöunda tímanum í gær grunaður um ölvunarakstur Stríð, þjóðaratkvæðagreiðsla og stafræn heilbrigðisþjónusta „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Sjá meira